Finnar setja þekkingarpróf sem skilyrði fyrir ríkisborgararétti

Ríkisstjórn Finnlands hefur lagt fram tillögu um að gera próf í þekkingu á finnsku samfélagi að skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar. Tillagan er hluti af víðtækri herðingu innflytjendalöggjafar sem hefur verið í gangi frá árinu 2023. Þetta kemur fram á vefsíðu finnskra yfirvalda.

Umsækjendur sýni fram á skilning á samfélaginu og gildum þess

Í tillögunni er gert ráð fyrir að umsækjendur sýni fram á þekkingu á menningu samfélagsins og grundvallargildum þess. Prófið yrði tekið á finnsku eða sænsku en einnig væri heimilt að uppfylla kröfuna með stúdentsprófi eða háskólanámi á öðru hvoru tungumálinu.

Mari Rantanen innanríkisráðherra Finnlands leggur áherslu á að ríkisborgararéttur sé ekki sjálfgefinn réttur og að breytingarnar stuðli að betri aðlögun innflytjenda, aukinni þátttöku á vinnumarkaði og virðingu fyrir lögum og reglum samfélagsins.

Hluti af umfangsmikilli lagabreytingu

Tillagan er sögð marka lokaskref í endurskoðun ríkisborgararéttarlaga þar sem skilyrði hafa verið þrengd verulega. Áður hafa reglur um búsetutíma, sakavottorð og fjárhagsstöðu umsækjenda verið hertar. Ef frumvarpið verður samþykkt er stefnt að því að prófið verði tekið upp á næsta ári. Það mun ná til þátta á borð við löggjöf, mannréttindi, jafnrétti kynjanna, sögu og menningu landsins.

Hertar aðgerðir um brottvísanir

Samhliða hefur ríkisstjórnin lagt til að hraða brottvísunum og heimila fyrirfram innkomubann á einstaklinga sem taldir eru ógna almannaöryggi eða þjóðaröryggi.

Svipuð þróun í Evrópu

Sams konar hugmyndir hafa verið ræddar víða í Evrópu og hafa stjórnvöld í Svíþjóð kynnt sambærilegar tillögur sem hluta af hertum reglum um veitingu ríkisborgararéttar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila