
Ráðstefna um inngildandi leikskólastarf fór fram á degi leikskólans í liðinni viku þar sem fræðafólk, stjórnendur og starfsfólk leikskóla kynntu nýjustu rannsóknir og þróunarverkefni á sviði félagsfærni, fjöltyngis, leikja og málþroska í leikskólum Reykjavíkur. Áætlað er að um tvö þúsund hafi tekið þátt í ráðstefnunni. Nærri eitt þúsund gestir sóttu hana í Háskólabíó og svipaður fjöldi fylgdist með í streymi.
Áhersla á starfsaðstæður og mikilvægi leikskóla
Dagskráin hófst með tónlistaratriði undir stjórn Hörpu Þorvaldsdóttur. Ólafur Brynjar Bjarkason setti ráðstefnuna og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ávarpaði gesti þar sem hún lagði áherslu á mikilvægi leikskólastarfs og bættar starfsaðstæður á vinnustöðum leikskólafólks.
Virk samskipti og fjöltyngi
Dr. Fríða Bjarney Jónsdóttir, samhæfingarstjóri MEMM í mennta- og barnamálaráðuneytinu, fjallaði um leikskólann sem samfélag sem styður virk samskipti barna og foreldra. Þar kom fram að vel skipulögð og inngildandi námsrými styrki bæði íslensku og heimatungumál barna og stuðli að jákvæðri sjálfsmynd fjöltyngdra barna.
Þátttaka starfsfólks í leik barna
Starfsfólk leikskólans Aspar kynnti starfendarannsókn um þátttöku barna í leik í fjölmenningarlegu umhverfi. Niðurstöður bentu til að virk þátttaka starfsfólks í leik barna stuðli að auknum orðaforða, innihaldsríkari samskiptum og jöfnum tækifærum barna í daglegu starfi.
Tengsl heimila og leikskóla
Dr. Björn Rúnar Egilsson, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, fjallaði um rannsókn á viðhorfum foreldra og leikskólakennara til fullgildis fjölskyldna í leikskólasamfélagi. Þar var lögð áhersla á að dagleg samskipti, samfélagsleg þátttaka og viðurkenning á fjölbreyttri reynslu foreldra geti styrkt tengsl heimila og leikskóla.
Tónlist og textar efla málskilning
Guðmundur Sigurþórsson kynnti verkefnið „Tölum um texta“ þar sem lagatextar og tónlist eru nýtt markvisst til að efla málskilning og hljóðkerfisvitund barna. Þá fjallaði Erna Aðalsteinsdóttir um mikilvægi leiks, sköpunar og virkrar þátttöku starfsfólks í daglegum samskiptum við börn í leikskólastarfi.
