Fjárhagur franska ríkisins og evran. Bjargvættur eða böl?

Júlíus Valsson skrifar:

Hefur evran verið Frökkum til góðs þegar horft er til fjárhagsvanda ríkisins? Hún hefur auðveldað fjármögnun og veitt skjól í áföllum. Jafnframt hafa frönsk stjórnvöld misst sjálfstæð hagstjórnartæki og hagstæð lánskjör kunna að hafa dregið úr þrýstingi til að taka á undirliggjandi vanda. Nú reynir á hvað þetta skjól evrunnar er traust.

Í júlí í fyrra kynnti François Bayrou, þáverandi forsætisráðherra Frakklands, fjárlagahugmyndir sínar frammi fyrir tjaldi með klukku þar sem á stóð að skuldir ríkisins ykjust um fimm þúsund evrur á hverri sekúndu. Meðal annars lagði hann til að Frakkar gæfu eftir tvo lögboðna frídaga. Frídagarnir héldu velli. Bayrou féll á vantrausti tæpum tveimur mánuðum síðar, en klukkan á tjaldinu gekk áfram, enda hafði enginn greitt atkvæði um hana.

Skuldasúpa franska ríkisins

Í lok júní 2026 námu skuldir franska hins opinbera um 3.596 milljörðum evra, eða 119% af vergri landsframleiðslu. Árið 2019 var hlutfallið um 98%. Hallinn nam 5,1% af landsframleiðslu árið 2025, þrátt fyrir skattahækkanir og aðhaldsaðgerðir. Skuldasöfnunin heldur því áfram. (Til samanburðar þá námu heildarskuldir íslenska ríkissjóðsins 75,0% af vergri landsframleiðslu í árslok 2025, eða um 3.708 milljörðum króna, samkvæmt nýjustu árstölum Hagstofunnar. Sú tala tekur meðal annars til lífeyrisskuldbindinga.)

Hvers vegna evru?

Sterkustu rökin fyrir evrunni snúa að fjármögnun. Frakkland hefur notið aðgangs að stórum fjármálamarkaði í sameiginlegum gjaldmiðli. Lágir vextir og skuldabréfakaup Seðlabanka Evrópu léttu vaxtabyrðina og studdu fjármögnun þegar áföll dundu yfir. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bendir á að lág vaxtagjöld hafi mildað skuldavandann síðustu ár og að seðlabankinn hafi gegnt mikilvægu hlutverki við að viðhalda stöðugleika.

Þetta forskot getur þó haft pólitíska aukaverkun. Þegar auðvelt er að fjármagna halla verður komast menn upp með að fresta óvinsælum ákvörðunum. Sú ályktun er dregin að hagstæð lánskjör hafi gefið frönskum stjórnvöldum lengri frest en þau nýttu vel. Það sannar þó ekki að evran hafi valdið skuldasöfnuninni. OECD rekur versnandi afkomu meðal annars til skattalækkana, en útgjöld vegna faraldursins og orkukreppunnar juku einnig skuldirnar verulega.

Er sameiginlegur gjaldmiðill góður kostur?

Ókostir sameiginlega gjaldmiðilsins verða skýrari þegar aðlögunar er þörf. Frakkar geta ekki ákveðið eigin stýrivexti eða látið gengi sérstaks fransks gjaldmiðils lækka til að bæta samkeppnisstöðu. Peningastefnan miðast við evrusvæðið í heild. Aðlögunin verður því í ríkari mæli að fara fram með breytingum á útgjöldum, sköttum, launum og framleiðni.

Eigin gjaldmiðill væri þó engin trygging fyrir betri niðurstöðu. Gengislækkun getur stutt útflutning, en hækkar jafnframt innflutningsverð og skerðir kaupmátt. Sjálfstæður seðlabanki getur brugðist við innlendri niðursveiflu, en getur ekki tryggt ríkinu ódýr lán án tillits til verðbólgu og trausts. Ekki er hægt að fullyrða að Frakkland stæði betur með frankann enn í umferð.

Gífurlega hár vaxtarkostnaður

Nú eru gömul lán á lágum vöxtum smám saman endurfjármögnuð á dýrari kjörum. Áætlaður vaxtakostnaður franska ríkisins hækkar úr 62,6 milljörðum evra árið 2026 í 72,9 milljarða árið 2027. Evran tryggir þannig hvorki franska ríkinu sömu kjör og því þýska né undanþágu frá mati lánveitenda.

Stuðningur Seðlabanka Evrópu er heldur ekki ótakmarkaður. Úrræði hans gegn óhóflegum óróa á skuldabréfamörkuðum eru háð skilyrðum um meðal annars sjálfbærni skulda og ábyrga hagstjórn. Þau eiga ekki að verja ríki gegn öllum afleiðingum eigin fjármálastefnu.

Gögnin styðja því að evran hafi verið Frökkum mikilvægur kostur við fjármögnun. Heildarávinningurinn er erfiðari að meta, enda fylgir honum minna sjálfstæði í hagstjórn. Beittasta gagnrýnin er sú að stjórnvöld hafi nýtt hagstæð kjör til að halda lántökum áfram og látið tækifærið til varanlegra umbóta fara forgörðum. Evran keypti franska ríkinu tíma. Frönsk stjórnvöld bera ábyrgð á því hvernig honum var varið.

Sá sem lesið hefur hingað hefur varið til þess um þremur mínútum. Á þeim tíma hafa skuldir franska ríkisins, sé tjald Bayrous lagt til grundvallar, hækkað um tæpa milljón evra. Klukkan gekk líka á tímum frankans en þá heyrðist í henni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila