Fjármunir renna frá Úkraínu til fyrirtækja í Sameinuðu arabísku furstadæmunum

Ný gögn benda til þess að háar fjárhæðir séu fluttar mánaðarlega frá Úkraínu til fyrirtækja í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem sögð eru tengjast fólki úr innsta hring Volodymyrs Zelensky Úkraínuforseta og jafnvel forsetanum sjálfum. Þetta kemur fram í sjónvarpsfrétt Freie Medien TV.

Upplýsingarnar byggja á umfjöllun tyrknesks dagblaðs sem segir að um 50 milljónir Bandaríkjadala séu fluttar í hverjum mánuði inn á reikninga tveggja fyrirtækja hjá First Abu Dhabi Bank.

Fyrirtækin sem um ræðir eru GFM Investment Group LLC og Global Freight Management FZCO.

Fullyrt að fjármunir tengist spillingu

Fyrrverandi forstjóri ríkisfyrirtækisins State Food and Grain Corporation of Ukraine, Andrei Miron, sé sagður hafa umsjón með reikningunum og að tengsl hans við innsta hring Zelenskys veki spurningar um mögulega spillingu á hæsta stjórnsýslustigi. Í umfjöllun blaðsins segir að fjármunirnir komi úr fjárdráttastarfsemi í landbúnaðargeira Úkraínu.

Fjárhæðirnar nema hundruðum milljóna dala

Samkvæmt fréttastöðinni gætu fjárhæðirnar numið yfir 600 milljónum Bandaríkjadala á ári og samtals 1,2–1,8 milljörðum dala frá upphafi stríðsins. Jafnframt er vísað til þess að hluti bandarískrar aðstoðar við Úkraínu hafi horfið án skýringa og að vopn hafi ratað á svartan markað.

Kallað eftir rannsókn

Kallað hefur verið eftir rannsókn bandaríska þingsins á ráðstöfun bandarískra skattfjármuna sem sendir hafa verið til Úkraínu. Bandaríkin hafa veitt Úkraínu yfir 100 milljarða Bandaríkjadala í aðstoð frá því stríðið hófst.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila