
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Guðmund Karl Snæbjörnsson, lækni í síðdegisútvarpinu um fjármögnun rannsókna á kórónuveirum í Wuhan í Kína og hvernig bandarískir rannsóknarstyrkir héldu áfram að renna til verkefna þar þrátt fyrir breytingar á reglum í Bandaríkjunum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Bandaríkin bönnuðu hluta rannsóknanna árið 2014
Guðmundur Karl sagði að bandarísk stjórnvöld hefðu árið 2014 stöðvað fjármögnun tiltekinna Gain-of-function rannsókna eftir öryggisatvik á rannsóknarstofum. Hann útskýrði að með Gain-of-function rannsóknum væri átt við rannsóknir þar sem eiginleikum veira væri breytt til að rannsaka hvernig þær gætu orðið smitnæmari eða valdið alvarlegri sjúkdómum.
Hann sagði þó að bannið hefði ekki stöðvað öll rannsóknaverkefni þar sem eldri samningar hefðu haldið gildi.
Fjármunir héldu áfram að renna til Wuhan
Guðmundur Karl, sagði að bandarísku rannsóknarsamtökin EcoHealth Alliance, hefðu fengið opinbera rannsóknarstyrki, fyrir milligöngu Fauci og áfram miðlað hluta þeirra til Wuhan-veirufræðistofnunarinnar í Kína. Hann sagði að þannig hefðu bandarískir fjármunir runnið til rannsókna þar, þrátt fyrir að Bandaríkin hefðu hert reglur um slíkar rannsóknir innanlands.
Arnþrúður rifjaði upp að mikið hefði verið talað um þá fjármuni sem runnið hefðu frá Bandaríkjunum til Wuhan árið 2015 og einnig til rannsóknaraðila í Hollandi.
Ralph Baric og EcoHealth Alliance gengdu lykilhlutverki
Guðmundur Karl nefndi EcoHealth Alliance, bandarísk rannsóknarsamtök sem hafa rannsakað smitsjúkdóma sem berast milli dýra og manna og sagði þau hafa gegnt lykilhlutverki við að miðla rannsóknarfjármagni til samstarfsaðila erlendis.
Hann nefndi einnig Ralph Baric, prófessor við University of North Carolina í Chapel Hill sem hefur um árabil rannsakað kórónuveirur. Að sögn Guðmundar Karls hafa rannsóknir hans og samstarf við vísindamenn í Wuhan síðar orðið hluti af umræðunni um uppruna COVID-19 og þá fjármögnun sem beindist að þessum rannsóknaverkefnum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
