
Leiðtogar SNP í Skotlandi, Plaid Cymru í Wales og Sinn Féin á Norður-Írlandi hafa undirritað sameiginlegt samkomulag um aukið samstarf og þrýsting á bresku ríkisstjórnina um stjórnskipulegar breytingar sem gætu leitt til upplausnar Bretlands. Leiðtogarnir lýsa því yfir að tími Westminster sé að renna sitt skeið. Þetta kemur fram í frétt GB News.
John Swinney, leiðtogi SNP, Rhun ap Iorwerth, leiðtogi Plaid Cymru, og Michelle O’Neill, varaforseti Sinn Féin, undirrituðu samkomulagið á fundi í Cardiff. Mary Lou McDonald, forseti Sinn Féin og leiðtogi stjórnarandstöðunnar á írska þinginu, tók einnig þátt í fundinum.
Fundurinn fór fram á vettvangi flokkanna en ekki fyrir hönd ríkisstjórna þeirra. Samkomulagið nær einnig til aukins samstarfs í efnahagsmálum, orkumálum og alþjóðamálum.
Tími Westminster að renna út
Í samkomulaginu segir að pólitískt landslag Bretlandseyja sé að breytast. Leiðtogarnir segja að „tími Westminster sé að renna sitt skeið“ og að stjórnskipulegar breytingar séu fram undan.
Flokkarnir vilja efla samstarf sín á milli og finna fleiri svið þar sem nánara samstarf geti skilað áþreifanlegum árangri. Þar er meðal annars boðað samstarf um efnahagsmál, hagvöxt og nýtingu orkuauðlinda.
Í samkomulaginu er jafnframt lýst yfir að framtíð þjóða þeirra sé innan Evrópusambandsins.
Krefjast réttar til sjálfsákvörðunar
Flokkarnir leggja áherslu á að þjóðirnar eigi sjálfar að ráða stjórnskipulegri framtíð sinni og að bresk ríkisstjórn eigi ekki að geta komið í veg fyrir lýðræðislegar ákvarðanir um framtíð þeirra.
Þeir viðurkenna að flokkarnir þrír hafi ólíkar stjórnskipulegar áherslur og að hver þjóð muni ákveða sína framtíð á eigin forsendum og á sínum tíma. Þeir krefjast þess að breska ríkisstjórnin undirbúi og greiði fyrir stjórnskipulegum breytingum.
Vill þjóðaratkvæði í Skotlandi innan 5 ára
John Swinney segir að halda verði nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands innan næstu 5 ára. Hann vísar til þess að meirihluti þingmanna á skoska þinginu styðji sjálfstæði og telur því umboð fyrir nýrri atkvæðagreiðslu liggja fyrir.
Swinney spáði því jafnframt að Andy Burnham yrði síðasti forsætisráðherra Bretlands og að Skotar myndu velja sjálfstæði fengju þeir tækifæri til þess í nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu.
Breska ríkisstjórnin hafnar þessari sýn. Talsmaður forsætisráðherrans segir Burnham leggja áherslu á varðveislu Bretlands og að ríkisstjórnin vilji einbeita sér að efnahagslegu öryggi og fjárhag heimilanna fremur en frekari þjóðaratkvæðagreiðslum um stjórnskipulega framtíð ríkisins.
