
Júlíus Valsson skrifar:
Bretar kusu Brexit meðal annars til að ná stjórn á sínum eigin landamærum. Síðan jókst aðflutningur fólks svo hratt að jafnvel dyggustu stuðningsmenn útgöngunnar áttu erfitt með að útskýra árangurinn. Nú er rætt hvort nánara samband við Evrópusambandið, jafnvel endurupptaka frjálsrar farar, geti orðið hluti af lausninni. Bresk stjórnmál hafa löngum kunnað að fara í hringi.
Tölurnar sýna umfangið. Hreinn aðflutningur, mismunur þeirra sem flytja til landsins og frá því, náði 944 þúsundum á tólf mánaða tímabili til mars 2023. Árið 2025 var hann kominn niður í 171 þúsund. Því er ekki alveg rétt að lýsa stöðunni sem sívaxandi innflutningi. En lækkandi árstala byggir engar íbúðir og leysir ekki uppsafnaðan vanda.
Landamærin færðust til Westminster
Eftir Brexit réðu bresk stjórnvöld sjálf reglum um aðflutning evrópsks vinnuafls. Þau opnuðu jafnframt leiðir fólks annars staðar að. Mikil fjölgun innflytjenda varð því undir kerfi sem Bretar höfðu sjálfir mótað. Hertar reglur og minnkandi aðflutningur til atvinnu hafa síðan stuðlað að lækkuninni. Sjálfstætt ákvörðunarvald tryggir greinilega engan árangur án skýrrar stefnu.
Vandinn birtist meðal annars á húsnæðismarkaði eins og við þekkjum vel hér á landi. Þegar fólki fjölgar hraðar en íbúðum eykst samkeppnin um húsnæðið, einkum um leiguhúsnæði. Breska ráðgjafarnefndin um fólksflutninga telur að aðflutningur hafi stuðlað að hækkandi húsnæðiskostnaði þar sem byggingar hafa ekki fylgt fólksfjölgun. Húsnæðisskorturinn á sér þó fleiri orsakir. Stjórnvöld geta tæplega boðið fólki að flytja til landsins og síðan látið sveitarfélög og leigjendur sjálfa leysa vandamálin.
Hælisleitendakerfið hefur jafnframt orðið sýnilegt tákn stjórnsýsluvandans. Um 16 þúsund hælisleitendur bjuggu á hótelum í lok júní, þótt þeim hefði fækkað um helming á ári. Hælisumsóknum hafði einnig fækkað um 21%. Þessi þróun skiptir máli, en hótelherbergi verða áfram afar dýr staðgengill fyrir starfhæft kerfi. Jafnframt þarf að greina hælisleit frá löglegum aðflutningi vegna atvinnu og náms.
Brussel kemur aftur til sögunnar
Fjórfrelsið er stjórnarskrá ESB og nú vill Andy Burnham forsætisráðherra nú ræða endurupptöku frjálsrar farar við ESB. Hann telur tímabundna atvinnudvöl hafa verið auðveldari fyrir Brexit og vill skoða nánari tengsl, þótt hann hafni bæði evru og aðild Bretlands að Schengen. Endurinnganga krefðist að hans mati nýrrar þjóðaratkvæðagreiðslu.
Tvær ólíkar leiðir
Þarna þarf að greina á milli ólíkra leiða. Afmarkað samkomulag um tímabundna dvöl ungs fólks, sem þegar er til umræðu, jafngildir ekki almennri frjálsri för. Tollabandalag snýst um vöruviðskipti. Þátttaka í innri markaðnum samkvæmt EES-fyrirmynd myndi hins vegar kalla á frjálsa för fólks og upptöku viðeigandi markaðsreglna. Orðið „endurstilling“ léttir ekki þær skuldbindingar.
Rök Burnhams vekja líka augljósa spurningu: Hvers vegna ætti aukinn réttur til að flytjast milli landa sjálfkrafa að draga úr heildaraðflutningi? Auðveldari heimför tryggir enga heimför.
Farage sér tækifærið og sakar Burnham um svik við Brexit. Hættan fyrir ríkisstjórnina er að viðræður um hagvöxt og viðskipti breytist í nýja orrustu um landamærin.
Lærdómurinn er óþægilegur fyrir báðar fylkingar. Brexit færði Bretum völd sem stjórnvöld nýttu illa.
Nánara samband við ESB leysir þau ekki undan ábyrgðinni.
Áður en kjósendum er boðið aftur til Brussel mætti sýna þeim fyrst að þau í Westminster kunni að stjórna.
