Frá viðarkurli til vítissóda. Loftslagið og rétttrúnaðurinn

Júlíus Valsson skrifar:

Þegar stjórnvöld leggja á nýtt gjald á almenning og fyrirtæki í nafni „loftslagsmála“ er fjárhæðin yfirleitt nákvæm. Hún kemur fram á reikningnum og greiðslufresturinn er skýr. Erfiðara getur reynst að fá jafn skýr svör við því hvað fæst fyrir peningana. Hvaða áhrif hafa þessar greiðslur á hitastig jarðar?

Hversu mikil losun sparast og hvað kostar hvert tonn?

Þessar spurningar ættu að vera upphaf umræðunnar. Þær verða stundum hálfgerður óþarfi þegar hið göfuga markmið hefur verið nefnt.

Árangurinn lætur bíða eftir sér

Þrátt fyrir áratuga alþjóðlegt samstarf og vaxandi fjölda aðgerða heldur losun áfram að aukast. Samkvæmt Alþjóðaorkumálastofnuninni, IEA, jókst orkutengd koltvísýringslosun heimsins um 0,4% árið 2025 og náði nýju meti, tæplega 38,4 milljörðum tonna.

Þetta sannar þó ekki að allar aðgerðir séu gagnslausar. IEA metur einnig að ný orkutækni hafi komið í veg fyrir verulega losun. Heildarárangurinn er samt langt frá fyrirheitunum og stjórnvöld geta tæpast ætlast til þess að hann sé metinn eftir fjárútlátunum einum.

Rannsókn í Science árið 2024 skoðaði um 1.500 loftslagsaðgerðir í 41 landi. Rannsakendur greindu 63 tilvik þar sem aðgerðir eða samspil þeirra tengdust mikilli losunarlækkun. Aðferðin nær síður utan um hægfara áhrif, en niðurstaðan gefur ríkt tilefni til að spyrja hvort nægilega sé greint á milli þess sem virkar og þess sem lítur vel út á pappír og hljómar vel í hátíðarræðum?

Frá viðarkurli til vítissóda

Running Tide varð eftirminnilegt íslenskt dæmi um þetta bil. Fyrirtækið sökkti 19 þúsund tonnum! af menguðu kanadísku viðarkurli í hafið og sagðist hafa bundið um 25 þúsund tonn af koltvísýringsígildum. Jón Ólafsson haffræðingur gagnrýndi forsendurnar harðlega í viðtali við Heimildina. Hann benti á að kolefnið væri þegar bundið í viðnum og taldi viðarkurlið sjálft ekki auka upptöku koltvísýrings úr lofti í sjó. Running Tide hélt fram gagnstæðu mati á loftslagsávinningnum. Starfsemin lagðist síðan af árið 2024. Skömmu síðar sáust kanadískar moskítóflugur á flögri í Hvalfirðinum. Óvís er um önnur skordýr og framandi gróður. Restin af viðarkurlinu var brennt hjá ELKEM á Grundartanga.

Lokun fyrirtækisins sker ekki úr um vísindalegt gildi aðferðarinnar. Hún minnir hins vegar á hve varasamt er að taka loforð um kolefnisbindingu sem staðfestan árangur. Manni verður hugsað til CarbFix í því sambandi.

Átta tonn af djöflasýru

Nú hyggst Röst sjávarrannsóknasetur demba átta tonnum af vítissóda í Hvalfjörð með blessun utanríkisráðuneytisins. Samkvæmt eigin lýsingu fyrirtækisins er þetta afmörkuð rannsókn á aukinni basavirkni sjávar, með vöktun og stöðvunarskilyrðum. Tilgangurinn er að afla þekkingar á mögulegri kolefnisupptöku. Ótímabært er að halda því fram að rannsóknin dragi úr hlýnun jarðar, um loftslagsárangur. Til þess þarf að sýna fram á varanlega viðbótarupptöku koltvísýrings og draga frá losun vegna mjög svo orkuríkrar framleiðslu efnisins, flutninga og framkvæmdar.

Prammi með viðarkurli og vítissódi í Hvalfirði geta þannig orðið táknmynd þeirrar freistingar að líta á sýnilega athöfn sem sigur. Hafið tekur við efnunum. Það gefur ekki út árangursvottorð.

Femínisminn og wóke-hugmyndafræðin stígur á stokk

Loftslagsstefnan hefur jafnan verið tengd víðtækari samfélagsmarkmiðum. Í opinberu starfi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna er fjallað um kynjasamþættingu og femínískar aðgerðir fyrir loftslagsréttlæti. Evrópuþingið hefur tengt loftslagsréttlæti við kynjajafnrétti og félagslegt réttlæti. Þar eru augljós tengsl við það sem gjarnan er kallað „wóke“-hugmyndafræði.

Þessi tengsl sanna ekkert um vísindalegt gildi Running Tide eða rannsókna Rastar. Þau sýna hins vegar að pólitíska dagskráin nær lengra en eðlisfræðin. Mæling á koltvísýringi ákveður hvorki skattastefnu né samfélagsskipan.

Vísindalegar heimildir styðja að maðurinn hafi valdið hlýnun. Engin sjálfkrafa gæðavottun fylgir því fyrir aðgerðir sem stjórnmálamenn velja í hennar nafni.

Almenningur á rétt á sannreynanlegu uppgjöri. Fögur fyrirheit eiga að þola sömu skoðun og aðrir reikningar.

Sérstaklega þegar reikningurinn er sendur öðrum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila