
Dr. Wallace Manheimer á 50 ára feril í kjarnorkurannsóknum að baki. Hann hefur gefið út yfir 150 vísindagreinar og heldur því fram með fullri vissu, að það „sé enginn vísindalegur grundvöllur“ fyrir því að búast megi við loftslagskreppu af völdum koltvísýrings í andrúmsloftinu á næstu öld.
Dr. Wallace Manheimer, þekktur kjarnorkueðlisfræðingur útskrifaður úr Tækniháskóla Massachusetts MIT, jarðaði núll-losunar markmiðið í grein í vísindariti um sjálfbæra þróun „Journal of Sustainable Development” (sjá pdf að neðan). Hlýða má á viðtal Tom Nelson við Wallace Mannheimer á myndskeiði neðar á síðunni.
Engin loftslagskreppa vegna koltvísýrings sjáanleg næstu öld
Dr. Manheimer heldur því fram, að það sé „enginn áreiðanlegur vísindalegur grundvöllur“ fyrir því að búast megi við loftslagskreppu af völdum koltvísýrings í andrúmsloftinu á næstu öld. Hann telur, að bæði jarðefnaeldsneyti og kjarnorka geti lifað samhliða í vaxandi siðmenningu, sem smám saman færst í átt að auknu trausti á nýtingu kjarnorku. Summit News greindi fyrst frá.
Dr. Manheimer heldur því fram í greininni, að útbreidd innleiðing vind- og sólarorku muni marka endalok nútímasiðmenningar, þar sem hann segir að nýju innviðirnir myndu ekki aðeins bila, heldur einnig kosta trilljónir dollara, skaða umhverfið og að lokum vera óþarfir.
Koltvísýringur er nauðsynleg forsenda lífs á jörðinni
Dr. Manheimer er einn í vaxandi hópi sérfræðinga sem telja að núverandi græn tækni, eins og vind- og sólarorka, vetni, rafgeymsla og varmadælur, hafi verulega ókosti og geti ekki komið í stað núverandi kerfa án skelfilegra afleiðinga. Hann bendir á, að á tímabili fyrir víðtæka notkun jarðefnaeldsneytis hafi menn og dýr verið orkuveitur og vegna þess hafi siðmenningin verið bundin við lítinn forréttindahóp og meirihluti fólks lifði við volæði og eymd.
Eðlisfræðingurinn gagnrýnir „loftslagsiðnaðarsamstæðuna“ sem hann telur að kyndi undir ranga sögu um loftslagskreppu. Hann lýsir viðvarandi flækju bandalags eiginhagsmunafyrirtækja, mikilmennsku stjórnmálamanna og heimsendaspámanna, sem hafa sannfært marga um að koltvísýringur, sem er nauðsynlegur fyrir líf á jörðinni og sem við öndum frá okkur með hverjum andardrætti, sé eitur fyrir umhverfið.
Starfsbróðir Dr. Mannheimers, prófessor emeritus Richard Lindzen hjá Tækniháskólanum í Massachusetts hefur ef til vill gert bestu samantekt á málinu fram að þessu:
„Það sem sagnfræðingar munu örugglega velta fyrir sér á komandi öldum, er hversu djúpt gölluð rökfræði, hulin með snjöllum og óvægnum áróðri, gerði bandalag öflugra sérhagsmunaaðila í rauninni kleift að sannfæra næstum alla í heiminum um að koltvísýringur frá mannlegum iðnaði væri hættulegt eiturefni sem eyðileggur plánetuna. Þess verður minnst sem mestu fjöldablekkingar í sögu heimsins – að koltvísýringur sem er lífsnauðsynlegur plöntum, var um tíma talið banvænt eitur.”
Græna lausnin hvorki áreiðanleg, hagkvæm né umhverfisvæn
Dr. Manheimer heldur því fram, að áherslan á falska loftslagskreppu sé að verða „harmleikur fyrir nútíma siðmenningu“ sem er háð áreiðanlegri, hagkvæmri og umhverfisvænni orku. Hann tekur fram, að vindmyllur, sólarrafhlöður og vararafhlöður sem verið er að kynna sem lausnir, skorti slíka eiginleika. Hann bendir einnig á, að það sé sérstaklega niðurdrepandi að upplifa hámenntuð samfélög sem halda fram úrslitakostum, þegar svo mikið af gagnstæðum upplýsingum eru aðgengilegar.
Eðlisfræðingurinn lýkur með því að benda á, að jörðin var hlýrri áður fyrr og hefur átt bæði hlýrri og kaldari tímabil rétt eins og í dag. Hann hvetur lesendur til að leita að gagnstæðum skoðunum um loftslagsvísindi og nota leitarvélar t.d. Google til að finna upplýsingar sem ekki falla að rangri sögu en tekur jafnframt fram, að Google veiti hugsanlega ekki aðgang að öllum slíkum upplýsingum. Sjá nánar hér.
Hér má finna lista yfir tíu helstu leitarvélar á Internet
Dr Wallace Manheimer who holds a physics PhD from MIT on wind and solar power:
— The Stark Naked Brief. (@StarkNakedBrief) January 10, 2023
"not only will this new infrastructure fail, but will cost trillions, trash large portions of the environment, and be entirely unnecessary” pic.twitter.com/Fo0h9iWrM1
