Fréttir vikunnar: Auðlindir Íslands skipta verulegu máli í umræðu um ESB-aðild

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Björn Þorra Viktorsson lögmann, í þættinum Fréttir vikunnar um hvaða hagsmunir geti tengst umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fram kom að auðlindir Íslands og staða landsins á norðurslóðum skipti miklu þegar rætt er um framtíðarsamskipti Íslands við Evrópusambandið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Aðild snýst um aðgang að auðlindum

Í þættinum var bent á, að umræðan um aðild Íslands að Evrópusambandinu snúist ekki aðeins um pólitík heldur einnig um aðgang að auðlindum. Þá kom fram að fiskveiðar hafi lengi verið eitt helsta álitamálið í slíkri umræðu. Bent var á að íslensk fiskimið séu meðal verðmætustu auðlinda þjóðarinnar og að stjórnun þeirra hafi verið grundvallaratriði í umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Fleiri auðlindir nefndar

Einnig var rætt um að fiskveiðar væru ekki eina auðlindin sem skipti máli í þessu samhengi. Landgrunn Íslands sé mikilvægt og ekki hvað síst orkumálin, vatnið og aðrar náttúruauðlindir. Þá kom fram að þegar rætt er um aðild að Evrópusambandinu þurfi að taka tillit til allra þeirra hagsmuna sem tengjast nýtingu auðlinda landsins.

Staða Íslands á norðurslóðum

þá var rætt í þættinum að landfræðileg staða Íslands á norðurslóðum hafi aukið mikilvægi landsins í alþjóðlegu samhengi. Aukinn áhugi á svæðinu tengist meðal annars auðlindum og siglingaleiðum. Í umræðunni kom fram að þessi staða Íslands geti haft áhrif á hvernig önnur ríki og alþjóðasamtök horfa til landsins.

Mikilvægt að ræða hagsmunina opinskátt

Ítrekað var mikilvægi þess að þegar rætt er um aðild að Evrópusambandinu þurfi að ræða opinskátt hvaða hagsmunir séu undir. Þá kom fram að mikilvægt sé að almenningur hafi skýra mynd af því hvaða auðlindir og hagsmunir geti tengst slíkri ákvörðun. Umræða um þessi atriði sé forsenda þess að hægt sé að taka afstöðu til framtíðarsamskipta Íslands við Evrópusambandið.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila