
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Ingvar Smára Birgisson lögmann, hjá Firma lögmönnum og stjórnarmann RÚV í þættinum Fréttir vikunnar, um kosningarnar í Ungverjalandi, viðbrögð við úrslitunum og pólitíska stefnu nýrrar forystu. Þar kom fram að stuðningur við harða innflytjendastefnu sé áfram ráðandi, að gagnrýni á Viktor Orbán hafi einkum beinst að tengslum við Rússland og væntingar um róttæka stefnubreytingu standist ekki. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Óbreytt stefna í innflytjendamálum
Ingvar sagði að þrátt fyrir breytingar á forystu í Ungverjalandi væri ekki um að ræða grundvallarbreytingu á stefnu í innflytjendamálum. Hann sagði að ungverskir kjósendur styðji áfram harða línu í þeim málaflokki og sú afstaða mótist ekki af því hver fari með völd hverju sinni. Hann benti á að ný forysta hefði komið úr sama stjórnmálaumhverfi og áður réð ríkjum og því væri stefnumunur minni en haldið hefur verið fram í umræðu.
Gagnrýni á Viktor Orbán beinist að Rússlandstengslum
Ingvar sagði að helsta gagnrýni á Viktor Orbán, hefði snúið að utanríkisstefnu hans, sérstaklega tengslum við stjórnvöld í Rússlandi. Þar hafi hann farið gegn meginstraumi í Evrópu og skapað spennu í samskiptum við önnur ríki. Hann sagði að á öðrum sviðum, þar á meðal í innflytjendamálum, hefði Orbán notið stuðnings stórs hluta kjósenda.
Væntingar um róttækar breytingar ganga ekki eftir
Í umræðunni kom fram að víða hefði verið fagnað breytingunum í Ungverjalandi og vænst þess að ný stjórn tæki upp opnari stefnu. Ingvar sagði að slíkar væntingar væru ekki í samræmi við pólitíska stöðu landsins. Engin merki væru um að ný stjórn hygðist breyta grundvallarstefnu í lykilmálum heldur frekar aðlaga stjórnarhætti og áherslur innan sama ramma.
Ríkisfjölmiðlar og stjórnmál í Ungverjalandi
Ingvar vísaði einnig til þess að ein af fyrstu aðgerðum nýrrar forystu hefði verið að grípa til breytinga á starfsemi ríkisfjölmiðla í landinu. Hann sagði að það sýndi að stjórnvöld litu á fjölmiðla sem mikilvægan þátt í pólitískri stefnumótun. Þróunin undirstrikaði að ríkisfjölmiðlar yrðu ekki sjálfkrafa hlutlausir þó það væri lögbundið, heldur þyrfti stöðugt aðhald til að tryggja jafnvægi í umfjöllun.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
