
Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram frumvarpsdrög í Samráðsgátt um breytingar á lögum um ársreikninga með það að markmiði að einfalda regluverk og bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja. Tillögurnar eru í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins.
Rýmkun fyrir smærri félög
Með frumvarpinu er lagt til að flokkun félaga endurspegli betur raunverulegt efnahagslegt umfang þeirra. Helsta breytingin felst í rýmkun stærðarmarka þeirra félaga sem geta nýtt sér einföld rafræn skil sem svokölluð örfélög. Gangi frumvarpið eftir mun stærri hópur minni rekstraraðila falla undir þá skilgreiningu og njóta einfaldari skila og minni álaga.
Hærri mörk og gagnsæi
Breytingarnar eru fjórþættar. Í fyrsta lagi er lagt til að stærðarmörk félaga í lögunum hækki um 25 % í samræmi við viðmið innan Evrópska efnahagssvæðisins. Örfélög hækka þó hlutfallslega meira þar sem fyrri mörk voru undir leyfilegum hámarksmörkum tilskipana.
Í öðru lagi er lagt til að endurskoðunarmörk hækki um 25 % til samræmis við ný stærðarmörk. Með því er brugðist við ábendingum frá atvinnulífinu um að dreifa álagi og létta byrðar minni félaga.
Í þriðja lagi er gert ráð fyrir innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um skýrslugjöf vegna tekjuskatts stórra fjölþjóðlegra félaga. Markmiðið er að auka gagnsæi og ábyrgð á markaði.
Í fjórða lagi eru lagðar til breytingar á skilum ársreikninga til opinberrar birtingar. Stærri og kerfislega mikilvæg félög yrðu skylduð til að skila fyrr á árinu á meðan skilafrestur smærri félaga yrði lengdur.
Smelltu hér til þess að skoða málið í samráðsgátt
