Fyrrum loftslagsspámaður: Það er engin loftslagskreppa í gangi – þetta er allt í plati

Verkfræðingurinn Tom Harris var einn af leiðandi kenningasmiðum hamfarahlýnunar. Hann taldi að koltvísýringur hefði áhrif á hitastig jarðar. Hann kom út úr skápnum í viðtali á Fox fyrir tíu mánuðum síðan og sagði, að loftslagshreyfingin væri allsherjar gabb. (Mynd skjáskot YouTube).

Það er engin loftslagskreppa til. Þetta er gabb „byggt á líkönum sem virka ekki,“ sagði fyrrum loftslagsdómsdagsmaðurinn Tom Harris í viðtali við Lauru Ingraham hjá Fox News fyrir tíu mánuðum síðan. Tom Harris útskýrði þá, hvers vegna hann hætti að trúa á heimsendi vegna hamfarahlýnunar (sjá myndskeið að neðan).

Að sögn Tom Harris er loftslagshreyfingin eitt allsherjar gabb. Sumir ræðumenn sem gagnrýna loftslagsmúgsefjunina geta sagt hluti eins og að „losun” okkar skipti engu máli, vegna þess að Kína losar svo miklu meira af koltvísýringi. Eina leiðin til að binda enda á svikin, útskýrði Tom, er að nota vísindin: „Grundvallaratriðið er, að það er engin loftslagskreppa til.”

Allt saman byggt á líkönum sem virka ekki

Tom Harris starfaði áður sem verkfræðingur í flug- og geimtækni. Þá skrifaði hann grein um gróðurhúsaáhrifin á Venus og hélt því fram að það sama gæti gerst á jörðinni ef ekki yrði dregið úr losun koltvísýrings. Kenningu Harris var hafnað af prófessor, sem sagði að fullyrðingin um Venus væri ekki sönn. Það sem gerðist á Venus gæti ekki gerst á jörðinni.

„Ég hugsaði, hver er þessi loftslagsafneitari. Hann bauð mér á rannsóknarstofuna sína og sýndi mér jarðsöguna og að engin samkvæm fylgni væri á milli koltvísýrings og hitastigs jarðar. Á ákveðnum tímum hefur koltvísýringurinn verið 1.300 prósent af því sem er í dag, samtímis sem mjög kaldar aðstæður ríktu. Ég fór að velta því fyrir mér, hvort hann hefði rétt fyrir sér. Hann benti á þúsundir vísindamanna. Hér er bók sem sýnir það, hún heitir „Climate Change Reconsidered.” Það eru þúsundir tilvísana í henni sem sýna, að það er enginn grundvöllur fyrir loftslagsóttanum – þetta er allt saman byggt á líkönum sem virka ekki.”

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila