Fyrrverandi læknir Hvíta hússins: „Heilabilun Joe Biden mun leiða Bandaríkin í stríð og drepa fólk!“

Fyrrverandi læknir Hvíta hússins, Ronny Jackson, varaði um helgina við því að heilabilun Joe Biden muni leiða Bandaríkin út í stríð og drepa fólk. Biden hefur eytt milljörðum dollara í hina spilltu þjóð Úkraínu í baráttu þeirra gegn Rússlandi á síðasta ári. Forsetinn þrýstir á meira stríð við kjarnorkuveldið þrátt fyrir augljósa hættu á alþjóða kjarnorkuhelför.

Fyrr í þessum mánuði fór Dr. Jackson fram á, að Hvíta húsið komi hreint fram varðandi augljósa heilabilun Biden og hætti hylmingum sínum um heilsubresti Biden. Almennir fjölmiðlar halda áfram að hunsa augljósa andlega hnignun þessa spillta forseta.

Fyrrverandi læknir Hvíta hússins fyrir Obama fyrrverandi forseta og einnig þingmaður repúblikana, Ronny Jackson, fulltrúi Texas, vara við möguleika á þriðju heimsstyrjöldinni. Dr. Jackson segir, að það sem hann líti á sem vitsmunalega hnignun Joe Biden forseta, sem aðrir hafa einnig bent á, sé að færa Bandaríkin nær „algeru stríði“ við Rússland:

„Það er ógnvekjandi fyrir landið okkar, að Biden er yfirmaður okkar. Hann veit ekki hvar hann er helming tímans og á hverjum degi færir hann okkur nær allsherjarstríði við Rússland og Kína.“

„Heilabilun hans mun leiða til dráps á fólki!“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila