Fyrrverandi ráðherra Úkraínu segir umbætur hafa mætt andstöðu innan hersins

Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu segir að umfangsmiklar umbætur sem hann reyndi að hrinda í framkvæmd hafi mætt harðri andstöðu frá yfirstjórn úkraínska hersins og ágreiningurinn hafi að lokum leitt til þess að hann var leystur frá embætti.
Fedorov gegndi embætti varnarmálaráðherra í 6 mánuði áður en Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti leysti hann frá störfum. Þetta segir í frétt France24.

Segir herinn hafa staðið gegn breytingum

Á blaðamannafundi í Kænugarði sagði Fedorov að margar þeirra breytinga sem ráðuneytið hefði lagt til hefðu verið stöðvaðar.
Hann gagnrýndi sérstaklega Oleksandr Syrsky, yfirmann úkraínska hersins, og sagði hann ekki tilbúinn til að ræða vandamál hersins af hreinskilni.

„Stríðið hefur gjörbreyst. Við getum ekki haldið áfram að treysta á það sem virkaði áður,“ sagði Fedorov.

Lagði áherslu á dróna og tæknivæðingu

Áður en Fedorov varð varnarmálaráðherra gegndi hann embætti ráðherra stafrænnar þróunar. Á meðan hann stýrði varnarmálaráðuneytinu lagði hann ríka áherslu á aukna notkun dróna, tæknilausna og gagnagreiningar í hernaðinum.

Hann beitti sér einnig fyrir breytingum á innkaupakerfi hersins, eflingu loftvarna og nýjum hvatakerfum fyrir herdeildir.
Stuðningsmenn hans telja að aukin áhersla á dróna hafi átt stóran þátt í að styrkja stöðu Úkraínu á vígvellinum á þessu ári.

Mótmæli eftir brottvikninguna

Brottvikning Fedorovs vakti mótmæli í Kænugarði, Lviv og fleiri borgum. Samkvæmt AFP naut hann trausts meðal margra vestrænna samstarfsaðila Úkraínu og var talinn einn helsti umbótamaður ríkisstjórnarinnar.

Volodymyr Zelensky sagði eftir brottvikninguna að ákvörðunin hefði verið tekin til að tryggja „einingu“ innan stjórnkerfisins en viðurkenndi jafnframt að samskipti Fedorovs og herforingjastjórnarinnar hefðu verið mjög erfið.

Nauti mikils trausts meðal almennings

Samkvæmt könnun Kyiv Institute of Sociology sem birt var í júní var Fedorov meðal þeirra opinberu embættismanna sem nutu mests trausts meðal almennings í Úkraínu.

Stjórnmálaskýrendur hafa sagt hann hafa fest sig í sessi sem einn helsti talsmaður tæknivæðingar og nútímavæðingar í úkraínskri stjórnsýslu og varnarmálum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila