
Breska þingið greiðir atkvæði í dag um hvort hefja eigi formlega rannsókn á Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, vegna ásakana um að hann hafi villt um fyrir þinginu í tengslum við skipun Peter Mandelson sem sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum. Forseti neðri deildar þingsins, Lindsay Hoyle, samþykkti að umræða og atkvæðagreiðsla færi fram eftir þrýsting frá þingmönnum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal Kemi Badenoch, leiðtoga Íhaldsflokksins. Þetta kemur fram í frétt Reuters.
Sagðu hafa veitt þinginu rangar upplýsingar
Deilan snýst um fullyrðingar Starmers þess efnis að „réttu ferli“ hafi verið fylgt við skipun Mandelson árið 2024. Síðar kom hins vegar fram í breskum fjölmiðlum að öryggisyfirvöld hefðu lagst gegn því að Mandelson fengi hæstu öryggisheimildir sem fylgja embættinu. Þingmenn vilja nú að sérstök nefnd rannsaki hvort Starmer hafi vitað af niðurstöðum öryggisathugana þegar hann svaraði þinginu eða hvort hann hafi gefið rangar upplýsingar.
Málið hefur jafnframt verið tengt umræðu um tengsl Mandelsons við bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein sem lést í fangaklefa árið 2019. Umræðan hefur valdið ríkisstjórn Starmers verulegum pólitískum skaða undanfarna mánuði.
Starmer hafnar ásökunum
Starmer hefur neitað því að hafa reynt að þrýsta á embættismenn eða farið framhjá reglum við skipun Mandelsons. Hann hefur þó rekið háttsettan embættismann í utanríkisráðuneytinu eftir að í ljós kom að upplýsingar um öryggisathuganir höfðu ekki borist forsætisráðherranum. Talsmaður forsætisráðuneytisins sagði í dag að umræðan væri „örvæntingarfullt pólitískt brelluspil“ af hálfu Íhaldsflokksins og að ásakanir stjórnarandstöðunnar ættu sér enga stoð.
Þyrfti stuðning úr eigin flokki
Hneykslismálið hefur skapað mikinn óróa í breskum stjórnmálum og stjórnarandstaðan hefur ítrekað krafist afsagnar Starmers. Verkamannaflokkurinn hefur þó enn stóran meirihluta á þinginu. Til þess að rannsókn verði samþykkt þyrfti því hópur þingmanna úr eigin flokki forsætisráðherrans að greiða atkvæði gegn ríkisstjórninni.
