
Grísk stjórnvöld vilja að Evrópusambandið geti tímabundið stöðvað rétt fólks til að sækja um hæli þegar ólöglegum komum yfir ytri landamæri sambandsins fjölgar hratt. Nokkur ESB-ríki, þar á meðal Þýskaland, Austurríki, Pólland og Danmörk, hafa tekið vel í að tillagan verði skoðuð. Þetta kemur fram í umfjöllun Euronews.
Thanos Plevris, ráðherra innflytjenda- og hælismála í Grikklandi, kynnti tillöguna á fundi innanríkisráðherra ESB í Lúxemborg.
Grikkir vilja koma á sérstöku neyðarfyrirkomulagi sem aðeins yrði virkjað við óvenjulegar aðstæður. Þar kæmi meðal annars til greina skyndileg og mikil fjölgun ólöglegra koma, mikið álag á innviði eða vísbendingar um að ríki utan ESB skipuleggi eða auðveldi komu mikils fjölda fólks að landamærum sambandsins.
Gætu sent fólk til baka án hefðbundinnar hælismeðferðar
Verði neyðarfyrirkomulagið virkjað yrði hægt að stöðva tímabundið móttöku hælisumsókna, hraða brottvísunum og kalla eftir tafarlausri aðstoð Frontex, landamærastofnunar ESB.
Breytingin yrði veruleg frá núverandi reglum. Fólk sem er statt í ESB á nú rétt á að leggja fram hælisumsókn og fá mál sitt metið sérstaklega.
Tillagan gæti hins vegar gert stjórnvöldum kleift að senda fólk til baka án slíkrar einstaklingsbundinnar málsmeðferðar þegar sérstakt neyðarástand hefur verið skilgreint.
Gagnrýnendur tillögunnar segja að þetta geti leitt til þess að hópar fólks verði sendir sameiginlega til baka, en slíkt er bannað samkvæmt núverandi reglum ESB.
Þýskaland og Austurríki taka vel í tillöguna
Nokkur aðildarríki hafa sýnt tillögunni áhuga.
Samkvæmt stjórnarerindreka ESB var skýr vilji meðal ríkjanna til að skoða málið og kanna hvaða breytingar væru mögulegar.
Þýskaland, Austurríki, Pólland og Danmörk eru meðal þeirra ríkja sem hafa tekið vel í hugmyndina.
Alexander Dobrindt, innanríkisráðherra Þýskalands, sagði hefðbundna hælismeðferð ekki geta farið fram við allar aðstæður.
„Venjuleg hælismeðferð getur ekki farið fram þegar ljóst er að þetta er ekki mannúðarástand heldur ástand sem skapast vegna smygls og upplýsingaaðgerða,“ sagði Dobrindt.
Gerhard Karner, innanríkisráðherra Austurríkis, tók enn dýpra í árinni.
„Ef 70.000 manns, sérstaklega ungir karlar, koma á einum degi hefur það augljóslega ekkert með hæli að gera […] og þá er ekki hægt að vinna samkvæmt fyrri reglum,“ sagði hann.
Belgíski innflytjendaráðherrann Anneleen Van Bossuyt sagði jafnframt að ekkert ætti að vera útilokað þegar leitað væri leiða til að gera brottvísanir þeirra sem ekki hafa rétt til dvalar skilvirkari.
Vilja geta brugðist við þrýstingi frá öðrum ríkjum
Tillagan tengist vaxandi umræðu innan ESB um að ríki utan sambandsins geti beint miklum fjölda innflytjenda að landamærum þess til að beita einstök aðildarríki pólitískum þrýstingi.
Gríska tillagan gerir ráð fyrir að neyðarfyrirkomulagið geti tekið gildi ef gögn benda til þess að ríki utan ESB skipuleggi eða auðveldi slíkar komur.
Evrópski þjóðarflokkurinn, EPP, lýsti fyrr í vikunni yfir stuðningi við að hægt yrði að stöðva rétt til hælisumsóknar þegar umfangsmiklir fólksflutningar væru vísvitandi nýttir sem þrýstiaðgerð gegn ESB-ríki.
Framkvæmdastjórn ESB vinnur nú að nýju neyðarkerfi vegna ólöglegra koma yfir ytri landamæri sambandsins og Grikkir vilja að heimildin verði hluti af því.
Grikkir og Pólverjar hafa áður gripið til slíkra aðgerða
Einstök Evrópuríki hafa áður stöðvað afgreiðslu hælisumsókna tímabundið.
Grikkland gerði það í einn mánuð í mars 2020 og aftur í 3 mánuði í júlí 2025 eftir skyndilega fjölgun fólks sem kom sjóleiðina frá Líbíu.
Pólland tók upp sambærilegt fyrirkomulag vegna fólks sem kom yfir landamærin frá Hvíta-Rússlandi í mars 2025.
Sameiginleg heimild innan ESB til að stöðva rétt til hælisumsóknar við slíkar aðstæður hefur hins vegar ekki verið samþykkt.
Hælisumsóknum hefur fækkað um 17%
Umræðan fer fram á sama tíma og hælisumsóknum í Evrópu hefur fækkað frá árinu 2023.
Um 332.000 manns sóttu um hæli í ríkjum ESB, Noregi og Sviss á fyrri helmingi þessa árs. Það var 17% fækkun frá sama tímabili árið 2025.
Á sama fundi samþykktu ráðherrarnir endanlega nýja reglugerð sem ætlað er að hraða brottvísunum fólks sem hefur ekki lagalegan rétt til dvalar innan ESB.
Reglurnar heimila meðal annars ESB-ríkjum að gera samninga við ríki utan sambandsins um sérstakar brottvísunarmiðstöðvar þar sem hægt verður að vista fólk sem á að senda frá Evrópu.
