Grunaður morðingi Charlie Kirk fer fyrir dóm og á yfir höfði sér dauðarefsingu

Dómari í Utah í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að nægar sannanir liggi fyrir til að rétta yfir Tyler James Robinson, 23 ára, vegna morðsins á Charlie Kirk. Robinson er sakaður um að hafa skotið Kirk til bana á háskólasvæði í Utah í september í fyrra og saksóknarar krefjast dauðarefsingar verði hann fundinn sekur. Þetta kemur fram í frétt France24.

Tony Graf dómari úrskurðaði á þriðjudag að málið skyldi fara fyrir dóm eftir forréttarhöld þar sem ákæruvaldið og verjendur Robinson deildu um hvort nægar sannanir væru fyrir hendi til að halda málinu áfram. Robinson lýsti sig saklausan af ákærunum eftir úrskurð dómarans.

Skotinn í hálsinn á háskólasvæði

Charlie Kirk var 31 árs þegar hann var skotinn í hálsinn á samkomu á háskólasvæði í Utah 10. september 2025. Samkoman var skipulögð af Turning Point, hægrisinnuðum samtökum ungs fólks sem Kirk hafði byggt upp og tóku virkan þátt í kosningabaráttu Donalds Trump fyrir forsetakosningarnar 2024.

Morðið vakti gríðarlega athygli í Bandaríkjunum og hafði mikil áhrif á pólitíska umræðu í landinu. Robinson var síðar handtekinn og ákærður fyrir morðið.

Saksóknarar vísa í skilaboð Robinson

Ákæruvaldið lagði við forréttarhöldin meðal annars fram samskipti Robinson úr spjallrásum tölvuleikjaspilara og textaskilaboð sem saksóknarar telja sýna fram á ástæður morðsins.

Samkvæmt málflutningi þeirra hafi Robinson verið orðinn „fed up“ eða fengið nóg af því sem hann lýsti sem „hatri“ sem Kirk dreifði.

Verjendur Robinson beindu hins vegar sjónum sínum sérstaklega að DNA-sönnunargögnum sem ákæruvaldið telur tengja hann við morðvopnið. Þeir drógu í efa áreiðanleika þeirra gagna.

Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að sönnunargögn ákæruvaldsins væru nægileg til þess að málið færi fyrir dóm.

Munu fara fram á dauðarefsingu

Málið getur haft alvarlegustu mögulegu afleiðingar fyrir Robinson verði hann fundinn sekur enda hyggst ákæruvaldið fara fram á dauðarefsingu. Erika Kirk, ekkja Charlie Kirk, sagði úrskurðinn mikilvægt skref í leit fjölskyldunnar að réttlæti.

„Ákvörðun dagsins, sem kemur nærri ári eftir að Charlie var tekinn frá okkur, markar mikilvægt skref í leit fjölskyldu okkar að réttlæti fyrir hann,“ sagði hún.

Erika Kirk hefur tekið við stjórn Turning Point eftir dauða eiginmanns síns. Charlie Kirk var einn þekktasti íhaldssami aðgerðarsinni Bandaríkjanna og áberandi stuðningsmaður Donalds Trump. Hann naut mikilla vinsælda meðal ungra hægrimanna og lagði mikla áherslu á hefðbundin gildi, trúmál og gagnrýni á frjálslyndar áherslur í bandarísku samfélagi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila