
Gullforði bandaríska fjármálaráðuneytisins hefur í fyrsta sinn farið yfir 1.000 milljarða dollara að markaðsvirði og kveikir þetta nýjar vangaveltur um að Bessent fjármálaráðherra gæti ákveðið að endurmeta forðann. Slíkt gæti fært ríkissjóði gríðarlegt fjármagn án þess að gefa út fleiri skuldabréf.
Óvenjulegt fyrirkomulag í Bandaríkjunum
Ólíkt mörgum ríkjum er gullforðinn í eigu ríkissjóðsins sjálfs en ekki Seðlabankans. Seðlabanki Bandaríkjanna heldur í staðinn á gullskírteinum sem samsvara virði gullsins og veitir ríkinu inneign í dollurum á móti. Ef virði gullsins væri fært til markaðsverðs nú myndi ríkissjóðurinn fá um 990 milljarða dollara til viðbótar í sjóðina.
Fordæmi til staðar í öðrum löndum
Bessent hafnaði upphaflega hugmyndinni en Bloomberg bendir á að Þýskaland, Ítalía og Suður-Afríka hafi öll endurmetið gullforða sinn á síðustu áratugum. Hagfræðingur hjá Seðlabanka Bandaríkjanna fjallaði nýlega um að slíkt endurmat gæti haft veruleg áhrif á efnahagsreikninga bæði ríkissjóðs og Seðlabankans.
Eins og magnbundin íhutun án aðgerða
Með endurmatinu myndu eignir ríkissjóðs og skuldir Seðlabankans hækka sem og inneign ríkissjóðs í TGA-reikningi. Sérfræðingar benda á að þetta myndi líta út eins og magnbundin íhlutun (QE) án þess að Seðlabankinn þyrfti að kaupa skuldabréf á opnum markaði. Áætlað er að slík aðgerð gæti veitt ríkissjóði um 700 milljarða dollara í lausafé án raunverulegra aðgerða.
Áhrif á hagkerfið og verðbólgu
Mark Cabana, fyrrverandi sérfræðingur hjá Seðlabankanum í New York og nú hjá Bank of America, telur að gullendurmatið gæti leitt til aukins fjármagns inn í hagkerfið, aukið verðbólguþrýsting og bætt umframlausafé inn í bankakerfið. Hann bendir á að slíkt myndi í reynd slaka á bæði ríkisfjármála- og peningastefnu.
Líklegt að gullverð hækki enn frekar
Framkvæmdin yrði sögð óhefðbundin og gæti grafið undan trú á sjálfstæði ríkisfjármála og peningastefnu en gæti á sama tíma aukið svigrúm ríkissjóðs til að borga niður skuldir og fjármagna hallarekstur. Sérfræðingar telja að slíkt endurmat myndi einnig ýta gullverði og jafnvel verðmæti annarra eigna eins og bitcoin upp á við.
Trump flýtir fyrir ákvörðunum
Bank of America metur líkurnar á að þessi leið verði farin enn litlar þar til fjármálaráðherrann útskýrir nánar áformin. Hins vegar telja aðrir að Donald Trump forseti gæti hrint aðgerðinni í framkvæmd hraðar en vænta mætti. Þeir segja þetta meðal helstu ástæðna þess að gullverð er nú rétt undir 4.000 dollurum á markaði.
