
Haraldur V. Noregskonungur er látinn, 89 ára að aldri, eftir skamma legu á sjúkrahúsi. Hann lést friðsamlega á Háskólasjúkrahúsinu í Ósló að morgni föstudagsins 28. ágúst. Haraldur hafði setið á konungsstóli frá árinu 1991 og notið mikilla vinsælda meðal norsku þjóðarinnar. Sonur hans, Hákon, tekur nú við konungdómi.
Haraldur hafði glímt við heilsubrest undanfarin ár og hafði ítrekað þurft að leggjast inn á sjúkrahús. Hann lést eftir veikindi af völdum rauðalosblóðleysis.
„Með mikilli sorg í hjarta tilkynnum við að Haraldur Noregskonungur lést í dag. Haraldur konungur andaðist friðsamlega á Háskólasjúkrahúsinu í Ósló föstudaginn 28. ágúst klukkan 6.35,“ segir í tilkynningu frá norsku konungsfjölskyldunni. Klukkan var þá 4.35 að íslenskum tíma.
Flaggað er í hálfa stöng við konungshöllina í Ósló. Hákon, 53 ára sonur Haraldar og Sonju drottningar, tekur við krúnunni.
Fyrsti Noregskonungurinn í 567 ár sem fæddist í landinu
Haraldur fæddist 21. febrúar 1937 á Skaugum í Asker. Foreldrar hans voru Ólafur krónprins, síðar Ólafur V. Noregskonungur, og Marta krónprinsessa af Svíþjóð.
Fæðing Haraldar hafði mikla þýðingu fyrir norsku konungsættina. Hann var fyrsti verðandi Noregskonungurinn í 567 ár sem fæddist í Noregi. Sá síðasti á undan honum var Ólafur Hákonarson sem fæddist árið 1380.
Haraldur átti tvær eldri systur, Ragnhildi og Ástríði. Samkvæmt norsku stjórnarskránni á þeim tíma gekk konungstignin aðeins í arf í karllegg og tryggði fæðing Haraldar því áframhaldandi erfðaröð innan fjölskyldunnar. Þeim reglum hefur síðan verið breytt og geta bæði kyn nú erft norsku krúnuna.
