Háskólinn í Washington aflýsti viðburði með hlaðvarpsstjórnanda vegna umdeildra ummæla

Háskólinn í Washington hefur aflýst fyrirhuguðum viðburði með hlaðvarpsstjórnandanum og stjórnmálaskýrandanum Hasan Piker. Piker hefur orðið áberandi á róttæka vinstrivængnum í Bandaríkjunum og stutt frambjóðendur sem tengjast Democratic Socialists of America. Þetta segir í frétt Zerohedge.

Ákvörðunin kemur í kjölfar mikillar umræðu um fyrri ummæli Piker um Bandaríkin, kapítalisma, innflytjendamál og kynþætti. Meðal annars hafa verið rifjuð upp ummæli hans um að Bandaríkin hafi átt árásirnar 11. september 2001 skilið og ummæli um að „drepa kapítalista“.

Sagðist vilja „eyðileggja hvíta kynstofninn“

Sérstaka athygli hafa vakið ummæli Piker um innflytjendamál þar sem hann talaði um að fleiri innflytjendur kæmu til vestrænna ríkja.

„Við erum hér til að eyðileggja hvíta kynstofninn,“ sagði Piker meðal annars.

Þá hafa einnig verið rifjuð upp ummæli þar sem hann sagðist ekki styðja Bandaríkin og bæri enga þjóðrækni í brjósti gagnvart landinu. Piker hefur jafnframt sagt Hezbollah-fánann vera uppáhaldsfána sinn.

Hefur stutt frambjóðendur á róttæka vinstrivængnum

Piker hefur tekið virkan þátt í stuðningi við frambjóðendur á vinstri væng bandarískra stjórnmála. Hann studdi meðal annars Abdul El-Sayed í baráttunni um öldungadeildarsæti Michigan og Francescu Hong í ríkisstjórakosningunum í Wisconsin.

Hann hefur einnig myndað náin tengsl við Zohran Mamdani, borgarstjóra New York, samkvæmt umfjölluninni.

Piker hefur þannig orðið sífellt sýnilegri í kringum stjórnmálahreyfingu Democratic Socialists of America þótt hann gegni ekki formlegu hlutverki sem talsmaður samtakanna.

Bandarísk yfirvöld sögð skoða tengsl

Samkvæmt umfjölluninni hafa bandarísk alríkisyfirvöld einnig skoðað möguleg tengsl Piker og annarra aðila við erlend áhrifanet. Þar er meðal annars vísað til ferðar hans til Kúbu og athugana á mögulegum tengslum við kúbversk kommúnistasamtök.

Ekki kemur þó fram að Piker hafi verið ákærður fyrir refsivert brot vegna þessara mála.

Þingmaður fagnar ákvörðun háskólans

Travis Couture, þingmaður Repúblikana í Washington-ríki, fagnaði ákvörðun háskólans um að aflýsa viðburðinum.

Couture sagði háskóla vissulega eiga að vera vettvang tjáningarfrelsis en taldi ekki rétt að skattfé væri notað til að kynna einstakling sem hefði sagt Bandaríkin hafa átt árásirnar 11. september skilið og talað um að blóði kapítalista yrði úthellt á götum.

Hann hvatti jafnframt kjörna fulltrúa og opinberar stofnanir til að taka skýra afstöðu gegn þeim hugmyndum sem Piker og Democratic Socialists of America standa fyrir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila