Hegseth vill árlega testosterónmælingu fyrir eldri hermenn

Pete Hegseth, stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur kynnt nýja stefnu sem felur í sér að hermenn 30 ára og eldri verði árlega skimaðir fyrir lágum testosteróngildum. Þeir sem greinast með skort geta, að mati heilbrigðisstarfsfólks, fengið hormónameðferð á frjálsum grundvelli. Þetta kemur fram í frétt RT.

Hegseth kynnti áformin í myndbandi sem hann birti á samfélagsmiðlinum X. Þar sagði hann markmiðið ekki vera að auka líkamlega getu með tilbúnum hætti heldur að endurheimta eðlilega hormónastarfsemi, bæta heilsu og tryggja að hermenn væru betur í stakk búnir til að sinna störfum sínum.

Segir nútímahernað gera auknar kröfur

Samkvæmt Hegseth krefst nútímahernaður þess að hermenn búi yfir sem bestri líkamlegri og andlegri getu. Hann sagði hormónameðferðina verða valfrjálsa og aðeins veitta að undangengnu læknisfræðilegu mati.

Stríðsmálaráðuneytið svaraði ekki spurningum um hvaða vísindarannsóknir lægju að baki stefnunni né hvort sambærileg skimun yrði framkvæmd hjá konum vegna lækkandi estrógengilda.

Gagnrýnt af stjórnarandstöðunni

Áformin hafa vakið gagnrýni meðal demókrata á Bandaríkjaþingi.

Þingkonan Tammy Duckworth sagði stefnuna minna á kynstaðfestandi meðferð, sem Hegseth og ríkisstjórn Donalds Trump hafa áður gagnrýnt harðlega. Þingkonan Chrissy Houlahan sagði ráðherrann taka mið af hugmyndum úr öfgafyllri karlmennskuumræðu á netinu.

Öldungadeildarþingmaðurinn Cory Booker sagði Hegseth ekki vera starfi sínu vaxinn og gagnrýndi að stríðsmálaráðherrann beindi athygli að þessu máli á sama tíma og Bandaríkin ættu í hernaðarátökum við Íran.

Rannsóknir sýna takmarkaðan ávinning

Testósterónskortur verður algengari með hækkandi aldri og getur meðal annars tengst minni kynhvöt, ristruflunum, skapsveiflum og þyngdaraukningu.

Nýlegar rannsóknir bandarískra heilbrigðisyfirvalda hafa bent til þess að hormónameðferð geti bætt kynhvöt og dregið að einhverju leyti úr skapsveiflum, en áhrif hennar á þol, minni og almenna líðan hafi reynst takmörkuð.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila