
MYND/Dómsmálaráðuneytið/Birgir Ísleifur
Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um Schengen-upplýsingakerfið (SIS) sem heimilar skráningu upplýsinga um ríkisborgara þriðju ríkja sem tengjast alvarlegri brotastarfsemi. Með breytingunum er jafnframt skýrari rammi settur um viðbrögð stjórnvalda á grundvelli slíkra skráninga.
Skráning tengd alvarlegum brotum
Með lögunum verður heimilt að skrá í kerfið upplýsingar um einstaklinga sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi, hryðjuverkum eða öðrum alvarlegum afbrotum. Um er að ræða gögn sem meðal annars berast frá Europol og fara í gegnum greiningu og sannprófun áður en til skráningar kemur. Breytingarnar fela í sér að lögregla og landamærayfirvöld fá greiðari aðgang að upplýsingum sem nýtast við eftirlit og aðgerðir á landamærum.
Skýrari viðbragðsrammi stjórnvalda
Í lögunum er einnig kveðið á um skýrari viðbrögð stjórnvalda þegar upplýsingar liggja fyrir í kerfinu. Markmiðið er að samræma framkvæmd og tryggja að upplýsingar leiði til markvissra aðgerða þar sem tilefni er til. Þetta styrkir samhæfingu milli íslenskra stjórnvalda og annarra ríkja innan Schengen-samstarfsins.
Hluti af alþjóðlegu öryggissamstarfi
Lagabreytingarnar eru liður í að uppfylla skuldbindingar Íslands innan Schengen og styrkja þátttöku landsins í sameiginlegu öryggiskerfi Evrópu. Með aukinni upplýsingamiðlun er ætlunin að bæta getu til að bregðast við brotum sem ná yfir landamæri.
