Heimsmálin: Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi víða í Evrópu

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson fjölluðu í Heimsmálunum um pólitíska þróun í Evrópu í Heimsmálunum og sögðu vaxandi andstöðu við Evrópusambandið endurspeglast í auknu fylgi stjórnmálaflokka sem vilja draga úr valdi sambandsins eða endurskoða samskipti ríkja við það. Guðmundur nefndi sérstaklega Frakkland og Þýskaland sem dæmi um þessa þróun.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Le Pen og AfD njóta vaxandi stuðnings

Guðmundur sagði Marine Le Pen, í Frakklandi og Alice Weidel, leiðtogi Alternative für Deutschland (AfD), hafa orðið táknmyndir stjórnmálaafla sem gagnrýna Evrópusambandið og vilja færa aukið vald aftur til einstakra ríkja. Að hans mati sýndi aukið fylgi þessara flokka að sífellt fleiri kjósendur væru ósáttir við þróun Evrópusambandsins og teldu að sambandið hefði tekið til sín of víðtækar valdheimildir á kostnað þjóðríkjanna.

Þjóðaratkvæðagreiðslur verði síðasta orðið

Einnig var rætt um hvernig taka ætti ákvarðanir um framtíðarsamskipti ríkja við Evrópusambandið. Guðmundur sagði slíkar ákvarðanir eiga að byggjast á vilja kjósenda og taldi þjóðaratkvæðagreiðslur eðlilegan farveg þegar um jafn stór stjórnskipuleg mál væri að ræða. Arnþrúður tók undir mikilvægi þess að almenningur fengi tækifæri til að kynna sér bæði kosti og galla áður en gengið yrði til atkvæða um mál sem snertu fullveldi ríkis.

Andstaðan helst í hendur við auknar áhyggjur af fullveldi ríkja og miðstýringu

Guðmundur taldi vaxandi andstöðu víða um Evrópu fyrst og fremst endurspegla auknar áhyggjur af fullveldi ríkja og miðstýringu Evrópusambandsins. Kom fram að umræða af þessu tagi, eigi eftir að verða áberandi á næstu árum þar sem fleiri Evrópuríki stæðu frammi fyrir kosningum og umræðu um ESB, valdheimildir þess og framtíðarskipan Evrópu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila