Heimsmálin: Baráttan gegn glóbalisma harðnar í Evrópu

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Franklín Jónsson í Heimsmálunum á Útvarpi Sögu um átökin milli glóbalista og þeirra sem standa vörð um sjálfstæði þjóðríkja. Arnþrúður sagði í raun standa yfir stríð milli þessara tveggja fylkinga þar sem tekist væri á um efnahagsstefnu, menningu, innflytjendamál og sjálfstæði ríkja. Guðmundur sagði leiðtogafund Bandaríkjanna, Rússlands og Kína marka upphaf nýrrar heimsskipanar sem myndi draga úr áhrifum yfirþjóðlegra stofnana. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Átök um sjálfstæði þjóðríkjanna

Arnþrúður sagði baráttuna milli glóbalista og andstæðinga þeirra vera eitt helsta átakamál samtímans. Þar tókust á hugmyndir um alþjóðlega miðstýringu og rétt þjóðríkja til að ráða eigin málefnum. Hún nefndi einnig vaxandi andstöðu við svokallaða woke-hugmyndafræði sem hluta af þessum átökum.

Guðmundur tók undir að verulegar breytingar væru að verða á alþjóðasamskiptum. Með samstarfi Bandaríkjanna, Rússlands og Kína væri að mótast ný skipan þar sem stórveldin settu sameiginlegar leikreglur og fullveldi ríkja fengi aukið vægi.

Hann sagði áhrif Evrópusambandsins og annarra yfirþjóðlegra stofnana fara minnkandi samhliða þessari þróun.

Efnahagsleg veiking velmegunarríkja

Arnþrúður útskýrði að glóbalísk hugmyndafræði gengi meðal annars út á að jafna efnahagslega stöðu þjóða með því að veikja fjárhag þeirra ríkja sem byggju við mesta velmegun.

Hún nefndi Norðurlöndin sérstaklega og ræddi hvernig efnahagsþrengingar, skuldsetning og aukin opinber útgjöld gætu grafið undan sjálfstæði ríkjanna. Að hennar mati væri verið að skapa fjárhagslegt kreppuástand sem drægi úr getu þjóðríkjanna til að standa undir eigin velferðarkerfum.

Arnþrúður beindi jafnframt sjónum að menntakerfinu og gagnrýndi breytingar á námsmati, meðal annars einkunnagjöf með bókstöfum sem hún sagði torvelda fólki að átta sig á raunverulegum námsárangri barna. Það væri áberandi að það væri eins og enginn mætti skara fram úr.

Mótstaða gegn miðstýringu frá Brussel

Guðmundur sagði stjórnmálaþróun í Evrópu bera merki vaxandi andstöðu við stefnu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þar nefndi hann Pólland, Ungverjaland, Slóvakíu,Tékkland og Búlgaríu sem ríki þar sem reynslan af kommúnisma hefði áhrif á afstöðu fólks til miðstýringar.

Arnþrúður tók undir að ríki Austur-Evrópu væru að mynda sterkari samstöðu gegn stefnu Brussel. Hún benti einnig á breyttar áherslur í innflytjendamálum og nefndi Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur sem hefði talað fyrir því að standa vörð um danska menningu og senda hælisleitendur til Ruanda.

Guðmundur sagði Evrópusambandið geta liðið undir lok í núverandi mynd fyrir árið 2030. Samstarf Evrópuríkja gæti þó haldið áfram sem viðskiptabandalag án þeirrar yfirþjóðlegu stjórnsýslu sem nú væri við lýði.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila