
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum í dag, um uppgjör vegna Covid-faraldursins eftir að David Morens, fyrrverandi háttsettur ráðgjafi Anthony Fauci hjá bandarísku smitsjúkdómastofnuninni NIAID, játaði sök vegna samsæris um að komast hjá lögum um opinber gögn. Hann játaði einnig svik gagnvart bandaríska ríkinu. Þau sögðu málið geta orðið upphaf að mun stærra uppgjöri sem næði til Bandaríkjanna, Bretlands, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og fleiri ríkja. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Játning Morens færir málið nær Fauci
Morens starfaði sem háttsettur ráðgjafi hjá NIAID frá 2006 til 2022. Hann játaði að hafa tekið þátt í samsæri þar sem samskipti um rannsóknarstyrki vegna kórónuveira voru falin fyrir opinberri upplýsingagjöf. Meðal annars var persónulegur Gmail-reikningur hans notaður fyrir samskipti sem áttu að varðveitast í opinberum kerfum. Bandaríska dómsmálaráðuneytið segir málið meðal annars tengjast styrknum Understanding the Risk of Bat Coronavirus Emergence, en hluti hans rann til Wuhan Institute of Virology í Kína áður en Covid 19 veiran var kynnt til sögunnar.
Arnþrúður sagði játninguna færa málið nær Anthony Fauci sem stýrði NIAID á Covid-tímanum. Hún benti á að Fauci tengdist fjármögnun rannsókna í Wuhan og Guðmundur sagði samskipti hans við aðra lykilmenn Covid-tímans eiga eftir að koma betur í ljós.
Guðmundur benti jafnframt á að Joe Biden hefði veitt Fauci uppgjöf sakar vegna hugsanlegra alríkisbrota, aftur til ársins 2014. Hann sagði þá vernd ekki ná til brota sem kynnu að falla undir lög einstakra ríkja og nú þegar væru ýmis ríki farin af stað með kærur gegn Fauci.
Barack Obama tengdur fjármögnuninni í Wuhan
Barack Obama kom inn í frásögn Arnþrúðar og Guðmundar vegna bandarískrar fjármögnunar rannsókna í Wuhan á árinu 2015. Guðmundur rifjaði upp heimsókn Obama til Kína á forsetatíð hans og tengdi hann við rannsóknarstarfsemina þar.
Arnþrúður sagði Obama hafa staðið að baki fjármögnuninni og hjálpað Fauci að koma fjármunum til Wuhan. Hún tengdi það við það stærra mál sem nú væri að koma upp á yfirborðið eftir játningu Morens.
Xi Jinping og hreinsanir innan kínverska hersins
Guðmundur sagði kínverska herforingja einnig hafa komið nærri málinu og tengdi hreinsanir Xi Jinping forseta innan kínverska hersins við menn sem hefðu starfað á bak við tjöldin.
Hann lýsti stöðu Xi sem baráttu við öfl innan kínverska kerfisins og bar hana saman við baráttu Donald Trump við djúpríkið í Bandaríkjunum og Vladimir Putin við sambærileg öfl í Rússlandi. Guðmundur sagði töluverðan fjölda manna hafa verið hreinsaðan út innan Kína.
Samskipti Jeremy Farrar og Fauci undir smásjánni
Jeremy Farrar var einn lykilmanna í Covid-viðbrögðum Bretlands, áður en hann varð háttsettur hjá WHO. Guðmundur sagði Farrar hafa verið í miklum samskiptum við Anthony Fauci strax í upphafi Covid-tímabilsins og enn ættu eftir að koma fram gögn um samskipti þeirra.
Farrar hefur nú látið af störfum hjá WHO. Guðmundur tengdi brotthvarf hans við óánægju með pólitísk afskipti, skrifræði og starfshætti stofnunarinnar.
Boris Johnson gekk erinda Fauci og ESB
Arnþrúður rifjaði upp að Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands hafi svikið bresku þjóðina þegar fólk var lokað inni og látið sæta óþarfa íþyngjandi sóttvarnaraðgerðum. Boris Johnson hafi verið látinn segja af sér sem forsætisráðherra þegar upp um hann komst og hann hefði gengið erinda Fauci og Ursúlu von der Leyen hjá ESB. Íslendingar hefðu gert stóran bóluefnasamning sem hefði verið fyrirframgreiddur kaupsamningur og Íslendingar hefðu farið eftir þeim leikreglum sem fylgdu samningnum. Alþingi Íslendinga fékk ekki að sjá innihald samningsins, nema örfáir þingmenn velferðarnefndar sem voru bundnir trúnaði og gátu ekki sagt frá innihaldinu.
Bill Gates og fjármögnun WHO
Guðmundur nefndi einnig Bill & Melinda Gates Foundation sem einn af stærstu fjármögnunaraðilum WHO og tengdi sjóðinn einnig við Gavi. Hann sagði þetta mikilvægt þegar skoðað væri hverjir fjármögnuðu alþjóðlega heilbrigðiskerfið og hvaða hagsmunir lægju þar að baki.
WHO veikist eftir brotthvarf Bandaríkjanna
WHO sjálf gegnir stóru hlutverki í því uppgjöri sem nú sé í vændum. Guðmundur sagði stofnunina vera að veikjast eftir að Bandaríkin gengu úr henni og nefndi að um 2.500 starfsmönnum hefði verið sagt upp af um 8.000–9.000 manna starfsliði. Brotthvarf Jeremy Farrar væri annað merki um þessa þróun. Guðmundur sagði WHO vera að hrynja fjárhagslega og velti fyrir sér hversu lengi stofnunin gæti haldið áfram í núverandi mynd.
Pfizer og Merck hluti af fjármögnunarkerfinu
Pfizer og Merck komu við sögu þegar Guðmundur fór yfir fjármögnun WHO. Hann sagði stór lyfjafyrirtæki leggja fé til starfseminnar og nefndi Pfizer og Merck sérstaklega ásamt Bill & Melinda Gates Foundation. Um væri að ræða stærri spurningu um fjármögnun WHO og samband stofnunarinnar við lyfjaiðnaðinn. Þetta farsóttarmál fjallaði fyrst og síðast um peninga.
Gavi og íslensk framlög
Guðmundur lýsti Gavi sem bólusetningasjóði sem tengdist Bill & Melinda Gates Foundation en Arnþrúður minnti á að Ísland hefði lagt verulegt fé til sjóðsins eða hálfan milljarð. Þau sögðu þurfa að skoða þessi fjárhagslegu tengsl þegar Covid-uppgjörið færi lengra og hvaðan fjármagn til alþjóðlegra bólusetningarverkefna hefði komið.
Katrín Jakobsdóttir og tengslin við WHO
Rætt var um Katrínu Jakobsdóttur, bæði vegna ákvarðana íslenskra stjórnvalda á Covid-tímanum og síðar vegna starfa hennar nú fyrir WHO. Guðmundur spurði hvort niðurskurðurinn hjá WHO hefði haft áhrif á stöðu Katrínar í ljósi þeirrar miklu fækkun starfsfólks sem orðið hefði hjá stofnuninni.
Arnþrúður sagði að Katrín sem hafi verið forsætisráðherra á Covid tímanum bæri ábyrgð á gjörðum íslenskra stjórnvalda á Covid-tímanum og sagði þurfa að skoða ákvarðanir sem teknar voru hér á landi þegar stærra uppgjör hæfist.
Svandís Svavarsdóttir og ákvarðanir Íslands
Svandís Svavarsdóttir kom við sögu vegna stöðu sinnar sem heilbrigðisráðherra þegar Covid-faraldurinn hófst. Svandís hafi meðal annars tekið þátt í ákvörðunum íslenskra stjórnvalda um bólusetningar, sóttvarnaráðstafanir og kaup á bóluefnum.
Arnþrúður sagði íslenska þáttinn ekki mega gleymast þegar farið yrði yfir hvað stjórnvöld vissu, hvaða upplýsingar lágu fyrir og á hvaða grundvelli ákvarðanir voru teknar. Afhverju þessi leyndarhjúpur væri yfir málinu í dag, bæði hjá Alþingi og stjórsýslunni.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
