
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson fjölluðu í Heimsmálunum um gögn sem tengjast Anthony Fauci og störfum hans fyrir bandaríska ríkið. Guðmundur sagði dagbækur Fauci hafa komist í hendur Bandaríkjaþings eftir að hann hefði árum saman notað tölvukerfi ríkisins við ritun þeirra og síðar sent gögnin á eigið netfang. Krærur í 50 ríkjum Bandaríkjanna væru fyrirliggjandi gegn Fauci. Arnþrúður ræddi umfang þeirra upplýsinga, sem nú væru að koma fram og tengdi málið við ábyrgð stjórnvalda og heilbrigðisyfirvalda á Covid-tímanum, meðal annars hér á landi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Ríkistölvur notaðar við ritun dagbókanna
Fauci vann að dagbókunum samhliða störfum sínum hjá bandaríska ríkinu sem sóttvarnarlæknir og ætlaði að nýta þær síðar við ritun sjálfsævisögu samkvæmt frásögn Guðmundar. Gögnin hefðu safnast upp á löngum tíma og geymt upplýsingar um störf hans, ákvarðanir og samskipti. Þegar Fauci lét af störfum sendi hann efnið til sjálfs sín með tölvukerfi ríkisins. Með þeirri aðgerð varð það rekjanlegt innan opinbera kerfisins og komst að lokum í hendur þingsins. Þar væri nú að finna umfangsmikið safn dagbókarfærslna sem næði yfir marga áratugi.
Margir telja framgöngu Fauci saknæma
Arnþrúður vakti athygli á að gögnin gætu varpað ljósi á ákvarðanir sem almenningur hefði ekki fengið fullnægjandi upplýsingar um. Málið snerist því ekki eingöngu um persónulegar dagbækur heldur hvernig opinber starfsmaður hefði skráð starfsemi sína og varðveitt gögnin í kerfum ríkisins. Starfsemi Fauci væri nú til rannsóknar og talinn saknæm af mörgun sem til þekkja.
Símar og skilaboð meðal rannsóknargagna
Fleiri gögn tengd Covid-tímanum væru einnig komin til skoðunar. Guðmundur sagði síma, SMS-skilaboð og önnur samskipti hafa ratað í hendur þingsins og rekja ætti hverjir hefðu verið í sambandi við Fauci og aðra sem komu að ákvarðanatöku. Þessi samskipti gætu sýnt hvernig ákvarðanir voru undirbúnar og hverjir tóku þátt í mótun aðgerða. Rannsóknin næði því langt út fyrir einstakar dagbókarfærslur og gæti leitt í ljós tengsl milli opinberra stofnana, ráðgjafa og þeirra sem stýrðu viðbrögðum stjórnvalda.
Guðmundur sagði Fauci sæta kærum í öllum 50 fylkjum Bandaríkjanna. Félagasamtök og lögmenn hefðu tekið að sér mál fyrir fólk sem taldi sig hafa orðið fyrir skaða eða misst ættingja vegna aðgerða á Covid-tímanum.
Alma Möller með víðtækt vald yfir framkvæmd aðgerða
Arnþrúður fór yfir stöðuna hér á landi og sagði litla umræðu hafa farið fram á Alþingi um sóttvarnarlögin sem tækju gildi 1. september n.k. Hún benti á að Miðflokkurinn hefði greitt atkvæði gegn lögunum en þingmenn Sjálfstæðisflokksins setið hjá.
Sérstaka athygli vakti hún á stöðu Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, sem hafi fengið nær ótakmarkað vald yfir framkvæmd sóttvarnaaðgerða með nýju sóttvarnarlögunum. Það næði meðal annars til ákvarðana um sprautur og annarra aðgerða án þess að Alþingi kæmi með skýrum hætti að endurskoðun eða gæti gripið inn í framkvæmdina.
Að mati Arnþrúðar fælist í þessu veruleg breyting á valdahlutföllum þar sem framkvæmdavaldið gæti fjarstýrt aðgerðum án nægilegs aðhalds frá þinginu. Hún lýsti jafnframt áhyggjum af því hvernig þessu valdi yrði beitt gagnvart skólum, ungu fólki og öldruðum þegar nýtt skólaár hæfist.
Samningar gætu takmarkað upplýsingagjöf
Arnþrúður tengdi stöðuna einnig við bólefnasamninginn sem Katrín Jakobsdóttir undirritaði árið 2020. Hún sagði ákvæði samningsins takmarka möguleika fjölmiðla og annarra á að birta upplýsingar sem þeir hefðu undir höndum.
Samkvæmt lýsingu hennar gætu þeir sem birtu tilteknar upplýsingar átt yfir höfði sér fangelsisrefsingu þar sem lög hefður verið sett til varnar því að enginn gæti birt opinberlega þau gögn sem leynilega ættu að fara. Það skapaði þá stöðu að fólk gæti búið yfir mikilvægri vitneskju en ekki átt þess kost að koma henni á framfæri.
Hún lagði áherslu á að almenningur fengi að sjá hvað hefði legið að baki ákvörðunum stjórnvalda og heilbrigðisyfirvalda. Of mikið hefði verið falið og of lítil umræða farið fram um mál sem hefðu haft afdrifarík áhrif á samfélagið.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
