
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum, um umfangsmikið fjármálahneyksli í Bandaríkjunum sem tengist Southern Poverty Law Center, sjálfseignarstofnun sem hefur starfað gegn kynþáttahatri og öfgahópum í Bandaríkjunum. Guðmundur sagði stofnunina hafa tekið þátt í að fjármagna og skipuleggja mótmæli og öfgahópa, samhliða því að safna fjármunum til að berjast gegn sömu hópum og búa þannig til óeirðir. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
USAID og tengsl við sjálfseignarstofnanir
Guðmundur sagði málið tengjast fjárveitingum frá USAID, þróunarstofnun bandarískra stjórnvalda sem var stofnuð á forsetatíð John F. Kennedy. Hann sagði Southern Poverty Law Center, hafa þróast úr samtökum gegn Ku Klux Klan yfir í umfangsmikla pólitíska og fjárhagslega starfsemi með náin tengsl við Demókrataflokkinn og öfgva vinstrisinnaða hagsmunahópa.
Í þættinum kom fram að bandarísk þingnefnd hefði hafið rannsókn á starfsemi stofnunarinnar, fjármögnun hennar og tengslum við mótmælahreyfingar og pólitíska starfsemi víða í Bandaríkjunum. Guðmundur sagði Southern Poverty Law Center hafa byggt upp fjáröflunarkerfi þar sem auðugir styrktaraðilar og stórfyrirtæki lögðu fram háar fjárhæðir í nafni baráttu gegn hatri og öfgum sem í raun væri öfugmæli.
George Soros, George Clooney og JPMorgan meðal bakhjarla
Guðmundur nefndi George Soros meðal helstu bakhjarls starfseminnar. Þá sagði hann Apple og bankarisann einnig hafa styrkt samtökin með fjárframlögum. Jafnframt hafi George Clooney leikari verið öflugur í fjárstuðningi.
Í umræðunni sagði Guðmundur að Tim Cook, forstjóri Apple, hefði brugðist hratt við þegar málið komst í umræðu og hefði látið af störfum strax. Guðmundur sagði að fjármunir hefðu runnið til hópa og aðgerða sem tengdust mótmælum, samfélagsátökum og skipulagningu pólitískra aðgerða. Hann nefndi meðal annars Ku Klux Klan, Aryan Nation, National Socialist Movement, United Klans of America og National Alliance sem dæmi um öfgasamtök sem tengdust umræðu um hatursglæpi og öfgar í Bandaríkjunum.
Greitt fyrir mótmæli og skipulagðar aðgerðir
Guðmundur sagði skipulag mótmæla í Bandaríkjunum vera umfangsmikið og fjármagnað. Hann sagði þátttakendur flutta á milli staða með rútum og greitt væri fyrir þátttöku þeirra í mótmælum og aðgerðum. Í þættinum sagði hann að ákveðnir hópar hefðu byggt upp fasta atvinnustarfsemi í kringum mótmæli, samfélagsátök og pólitíska spennu. Arnþrúður sagði slíka starfsemi tengjast beinum atvinnuhagsmunum þar sem áframhaldandi átök tryggðu áframhaldandi fjármögnun og áhrif.
Þá var rætt um skattalega stöðu sjálfseignarstofnana í Bandaríkjunum. Guðmundur sagði slíkar stofnanir njóta víðtækra skattfríðinda og minni upplýsingaskyldu en hefðbundin fyrirtæki. Hann sagði um 2 milljónir sjálfseignarstofnana starfandi í Bandaríkjunum og að kerfið hefði skapað umfangsmikla og lítt gegnsæja fjármálastarfsemi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
