
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Hauk Hauksson fréttamann í Moskvu í dag, í Heimsmálunum um þróun drónahernaðar í stríðinu í Úkraínu. Þar kom fram að Haukur teldi notkun langdrægra dróna hafa gjörbreytt eðli stríðsins og aukin notkun þeirra gæti leitt til frekari stigmögnunar og víðtækari átaka. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Drónahernaður hefur tekið stakkaskiptum
Arnþrúður ræddi við Hauk um þróun drónaárása í stríðinu og hvernig þær hefðu breytt hernaðinum. Haukur sagði að Úkraínumenn beittu nú drónum í síauknum mæli gegn skotmörkum djúpt inni í Rússlandi, meðal annars olíuhreinsunarstöðvum, hernaðarmannvirkjum og öðrum mikilvægum innviðum.
Hann sagði jafnframt að nýjar aðferðir hefðu komið fram þar sem drónar væru fluttir leynilega inn í Rússland, meðal annars í flutningabílum, áður en þeim væri flogið að skotmörkum með fjarstýringu. Að hans mati væri þetta dæmi um hvernig nútímahernaður hefði tekið miklum breytingum. Oft væru bílstjórar þessara flutningabíla jafnvel grunlausir um að þeir séu að flytja með sér dróna.
Árásir geta verið gerðar frá svæðum utan Úkraínu
Í framhaldinu sagði Haukur að rætt hefði verið um að drónar gætu verið sendir af stað frá svæðum utan Úkraínu, meðal annars frá Eystrasaltslöndunum og einnig af Svartahafssvæðinu. Að hans mati gerði þessi þróun mun erfiðara að greina uppruna árása og flækti jafnframt stöðu þeirra ríkja sem kynnu að tengjast slíkum aðgerðum.
Getur haft afleiðingar fyrir Eystrasaltsríkin
Pétur spurði hvort það jafngilti stríðsástandi ef drónar væru sendir frá Eystrasaltsríkjunum inn í Rússland og hvernig Rússar kynnu að bregðast við slíkri þróun.
Haukur svaraði því til að samkvæmt þjóðarétti gæti ríki sem heimilaði að eigið landsvæði, lofthelgi eða innviðir væru notaðir til hernaðaraðgerða talist orðið þátttakandi í átökunum. Hann sagði þetta vera á meðal þeirra atriða sem rússnesk stjórnvöld hefðu varað við og töldu geta leitt til frekari útvíkkunar stríðsins.
Hættan á útvíkkun stríðsins fer vaxandi
Haukur sagði að þróunin væri áhyggjuefni þar sem hún gæti dregið fleiri ríki inn í átökin. Að hans mati hefði drónatæknin skapað nýjar áskoranir fyrir hernað og öryggismál og aukið hættuna á því að stríðið breiddist út fyrir landamæri Úkraínu og Rússlands.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
