
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu í Heimsmálunum í dag, um drónaárásir Úkraínu á skotmörk langt inni í Rússlandi og áhrif þeirra á almenning. Haukur sagði árásir í auknum mæli hafa beinst að borgaralegum svæðum auk olíumannvirkja og samgöngukerfa. Hann taldi markmiðið meðal annars vera að skapa ótta og óánægju meðal almennings en sagði áhrifin verða þveröfug þar sem árásirnar þjöppuðu Rússum saman og styrktu stuðning við stjórnvöld. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Þrettán létust í árás í Tatarstan
Haukur sagði 13 manns hafa látist í drónaárás í Tatarstanæ í nótt s.l. Arnþrúður benti á að árásin hefði átt sér stað langt inni í Rússlandi, um 500 kílómetra austur af Moskvu og um 1.200 kílómetra frá Úkraínu.
Haukur sagði mikilvægt að greina frá því hverjir yrðu fyrir árásunum. Hann nefndi baðstrendur þar sem fjölskyldur væru í sólbaði og fólk í blaki auk skóla, verslunarmiðstöðva og kaffihúsa. Hann nefndi einnig börn í fótbolta og eldra fólk sem kæmi saman til að tefla eða spila dómínó.
Að sögn Hauks beindu Rússar hins vegar beina sínum árásum að skotmörkum af hernaðarlegum toga.
Olíumannvirki og samgöngur einnig skotmörk
Drónaárásirnar hafa að sögn Hauks einnig beinst að olíuhreinsistöðvum, lestarstöðvum, olíuflutningum og stórum flutningabílum. Árásir á olíuiðnaðinn hefðu haft áhrif á bensínverð í Rússlandi en tekist hefði að koma stórum hluta vinnslunnar aftur í gang.
Áhrif árásanna væru einnig farin að sjást í ferðalögum almennings. Haukur sagði suma Rússa hafa hætt við ferðir til Krímskaga vegna drónaárása og það hefði komið niður á ferðaþjónustu, hótelum og útleigu.
Rússar standi betur í stríðinu
Hann sagði Rússa jafnframt hafa betur í stríðinu þrátt fyrir drónaárásirnar Úkraínuhers. Að hans sögn hefðu árásir langt inni í landinu því hvorki snúið stöðunni á vígvellinum né skapað þá innri óánægju sem þeim væri ætlað að kalla fram.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
