
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu, í Heimsmálunum um ákvörðun Evrópusambandsins að banna aðgengi að rússneskum ríkisfjölmiðlum á borð við RT ( Russia Today). Haukur gagnrýndi ákvörðunina harðlega og sagði hana takmarka aðgengi almennings að upplýsingum og ólíkum sjónarmiðum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Bannið dregur úr fjölbreytni í upplýsingamiðlun
Arnþrúður ræddi við Hauk um ákvörðun Evrópusambandsins að banna miðlun efnis frá RT og öðrum rússneskum ríkisfjölmiðlum. Haukur sagði að með slíkum aðgerðum væri almenningi gert erfiðara fyrir að kynna sér ólíkar hliðar alþjóðamála. Hann sagði að að hans mati ættu einstaklingar sjálfir að geta metið trúverðugleika frétta og borið saman umfjöllun frá ólíkum fjölmiðlum í stað þess að stjórnvöld ákvæðu hvaða miðlar væru aðgengilegir. Fólk ætti rétt á því að fá upplýsingar frá eins mörgum hliðum og hægt væri.
Mikilvægt að bera saman ólíkar heimildir
Í framhaldinu sagði Haukur að þeir sem vildu átta sig sem best á alþjóðamálum þyrftu að fylgjast með bæði vestrænum og rússneskum fjölmiðlum. Að hans mati væri varasamt ef aðgangur að upplýsingum væri takmarkaður með lagasetningu eða stjórnsýslulegum ákvörðunum.
Hann sagði að bann við miðlum á borð við RT væri dæmi um þróun þar sem stjórnvöld reyndu í auknum mæli að stýra því hvaða upplýsingar almenningur hefði aðgang að og í raun væri það algjör þöggun. Haukur velti því fyrir sér hvað það væri að ESB vildi fela með þessu banni.
Bannið tengt þróun innan Evrópusambandsins
Í umræðunni var komið inn á stækkun Evrópusambandsins og þá stefnu að fjölga aðildarríkjum verulega á næstu árum. Haukur sagði að hans mati færi aukin miðstýring innan Evrópusambandsins saman við ákvarðanir sem takmörkuðu upplýsingaflæði. Hann taldi að þróunin sýndi að Evrópusambandið legði sífellt meiri áherslu á að samræma bæði stefnumótun og upplýsingamiðlun milli aðildarríkja.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
