
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu, í Heimsmálunum um kröfu Zelenskyjs um að leiðtogar Þýskalands, Bretlands og Frakklands komi að næstu viðræðum um frið í Úkraínu. Haukur sagði það ekki raunhæft enda væru þessir leiðtogar ekki velkomnir að samningaborðinu frá sjónarhóli Moskvu. Hann sagði Bandaríkin nú leita leiða til að koma af stað friðarviðræðum en Evrópuríkin hefðu með stefnu sinni gagnvart Rússlandi veikt eigin stöðu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Zelenskyj vill Evrópuleiðtogana með
Arnþrúður rakti að Steve Witkoff og Jared Kushner, hefðu eftir fundi sína með Rússum og Úkraínumönnum sagst vera komnir með nýjar hugmyndir og að næsta skref gæti orðið ný lota formlegra viðræðna.
Zelenskyj hefði krafist þess að fá fund með Vladimír Pútín og vildi jafnframt að fulltrúar Þýskalands, Bretlands og Frakklands kæmu að fundinum.
Arnþrúður spurði Hauk hvort raunhæft væri að þessir Evrópuleiðtogar fengju sæti við samningaborðið.
Haukur taldi svo ekki vera. Leiðtogar þessara ríkja væru ekki velkomnir að samningaborðinu frá sjónarhóli Moskvu. Hann sagði Pútín ekki vilja sjá þá þar og Ursula von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB væri heldur ekki velkomin frá sjónarhóli Washington eða Moskvu.
Samskiptin við Evrópu versnað
Haukur rakti að Pútín hefði áður átt ágæt samskipti við Emmanuel Macron, Frakklandsforseta og að þeir hefðu meðal annars rætt saman í síma. Staðan hefði hins vegar breyst verulega.
Hann gagnrýndi Macron, Friedrich Merz Þýskalandskanslara og breska ráðamenn fyrir stefnu þeirra gagnvart Rússlandi og sagði Evrópu hafa skotið sig í fótinn með þeirri leið sem farin hefði verið.
Á sama tíma hefðu Bandaríkin undir stjórn Donalds Trump tekið frumkvæðið í tilraun til friðarviðræðna og væru í beinum samskiptum við bæði Moskvu og Kænugarð.
Bandaríkin leiða friðarferlið
Þá benti Arnþrúður á að nýjar hugmyndir væru komnar inn í viðræðurnar eftir fundi bandarísku sendimannanna og næsta skref gæti orðið formlegur fundur deiluaðila.
Haukur sagði Bandaríkin vera í þeirri stöðu að geta rætt beint við Rússa á meðan helstu leiðtogar Evrópu hefðu komið sér í mun verri stöðu gagnvart Moskvu.
Þar lægi grundvallarmunurinn á stöðu Bandaríkjanna og Evrópuríkjanna þegar kæmi að næstu skrefum í friðarferlinu. Þótt Zelenskyj vildi fá Þýskaland, Bretland og Frakkland að borðinu væru litlar líkur á að Rússar samþykktu slíkt fyrirkomulag.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
