Heimsmálin: Evrópusambandið gæti liðið undir lok fyrir árið 2030

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu um áhugaverðar breytingar sem væru fyrirhugaðar og samþykktar á leiðtogafundi forseta Bandaríkjanna, Kína og Rússlands sem lauk í Kína í mogun. Fundurinn væri að boða upphaf af nýjum kafla í alþjóðasamskiptum. í Heimsmálunum á Útvarpi Sögu í dag ræddu þau einnig um framtíð Evrópusambandsins, efnahagsvanda Evrópuríkja og breytt valdahlutföll í heiminum eftir leiðtogafundinn í morgun. Guðmundur telur að Evrópusambandið verði ekki til í núverandi mynd árið 2030. Hann telur vaxandi óánægju með stefnu ráðamanna í Brussel, efnahagsþrengingar og breyttar stjórnmálaáherslur muni leiða til grundvallarbreytinga á samstarfi Evrópuríkjanna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Evrópusambandið gæti breyst í viðskiptabandalag

Guðmundur telur að Evrópusambandið eigi aðeins nokkur misseri eftir í núverandi mynd og telur að verulegar breytingar verði komnar fram fyrir árslok 2029.

Hann útilokaði þó ekki að samstarf Evrópuríkjanna héldi áfram með öðrum hætti, til dæmis sem viðskiptabandalag sjálfstæðra ríkja án þeirrar yfirþjóðlegu stjórnsýslu sem nú væri í Brussel. Löndin fengju að halda sjálfstæði og fullveldi sínu og ekki bundin af sameiginlegum reglum sem fámenn klíka í Brussel setur.

Að hans mati hafi Evrópusambandið þróast í átt sem gangi gegn hagsmunum aðildarríkjanna. Hann gagnrýndi sérstaklega Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnarinnar og taldi stefnu hennar hafa veikt efnahag Evrópu og aukið óánægju meðal almennings.

Efnahagsvandi og breytt stjórnmál stefna samstarfinu í hættu

Guðmundur tengdi framtíð sambandsins við versnandi fjárhagsstöðu evrópskra ríkja, vaxandi útgjöld og erfiðleika við að standa undir velferðar- og lífeyriskerfum.

Arnþrúður tók undir að velferðarkerfi Evrópu væru undir vaxandi álagi og lífeyrisskuldbindingar væru að sliga fjárhag ýmissa ríkja innan ESB. Hún ræddi jafnframt breytt viðhorf til innflytjendamála og nefndi Danmörku, þar sem Mette Frederiksen forsætisráðherra hefði lagt áherslu á að varðveita danska menningu og herða stefnu stjórnvalda í málaflokknum.

Guðmundur nefndi Marine Le Pen í Frakklandi og Alice Weidel í Þýskalandi sem dæmi um stjórnmálaleiðtoga sem vildu breyta tengslum ríkja sinna við evruna og Evrópusambandið. Hann taldi slíkar stjórnmálahreyfingar eiga eftir að styrkjast eftir því sem efnahagslegur þrýstingur ykist.

Austur-Evrópuríki andsnúin stefnu Brussel

Arnþrúður ræddi aukna samstöðu ríkja í Austur-Evrópu sem hefðu gagnrýnt stefnu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Guðmundur benti á í því sambandi á Pólland, Ungverjaland, Slóvakíu og Búlgaríu og sagði stjórnmálaþróun þar sýna vaxandi andstöðu við miðstýringu frá Brussel. Þessi ríki hefðu reynslu af kommúnisma og væru því sérstaklega á varðbergi gagnvart auknum áhrifum yfirþjóðlegra stofnana.

Evrópusambandið hefði einnig misst áhrif á alþjóðavettvangi, meðal annars vegna þess að leiðtogar þess hefðu ekki tekið þátt í fundi stórveldanna í Kína.

Nýtt valdajafnvægi og upphaf nýs kafla í alþjóðasamskiptum

Arnþrúður sagði fund leiðtoga Bandaríkjanna, Rússlands og Kína marka upphaf nýs kafla í alþjóðasamskiptum þar sem stórveldin mótuðu sameiginlegar leikreglur.

Guðmundur tók undir þá lýsingu og taldi Evrópu, Bretland og Kanada standa veikar eftir þegar áhrif stórveldanna 3ja færu vaxandi. Hann spáði umfangsmiklum breytingum á alþjóðastjórnmálum á næstu tveimur árum.

Að hans mati yrðu Evrópuríkin að endurskoða núverandi samstarf og leggja meiri áherslu á sjálfstæði þjóðríkjanna. Annars myndi vaxandi pólitískur og efnahagslegur ágreiningur leiða til þess að Evrópusambandið liðaðist í sundur.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila