
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum um yfirheyrslu bandarískrar þingnefndar yfir Anthony Fauci, fyrrverandi forstjóra Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna. Fauci hefur verið stefnt fyrir öryggis- og stjórnsýslunefnd öldungadeildarinnar 29. júlí þar sem hann verður spurður um uppruna COVID-19, rannsóknarstyrki til Wuham í Kína og hvort upplýsingum hafi verið haldið frá almenningi og Bandaríkjaþingi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Stefnt fyrir stjórnsýslunefnd öldungardeildar
Arnþrúður greindi frá því að Fauci yrði yfirheyrður, með réttarstöðu vitnis, af nefnd sem Rand Paul öldungadeildarþingmaður stýrir. Um sé að ræða öryggis- og stjórnsýslunefnd öldungadeildarinnar en Fauci var stefnt fyrir hana eftir að hann hætti við að mæta sjálfviljugur.
Guðmundur sagði yfirheyrsluna geta orðið afdrifaríka þar sem Fauci þyrfti að svara spurningum um fyrri framburð sinn og ný gögn sem nefndin hefði undir höndum. Þar væri meðal annars um að ræða dagbókarfærslur, tölvupósta og önnur samskipti frá COVID-tímabilinu.
Guðmundur benti á að Fauci hafi veitt rangar upplýsingar um uppruna veirunnar, smitleiðir, PCR-próf, lokanir, sóttkví og notkun andlitsgríma. Þá hafi Fauci einnig komið að fjármögnun rannsókna sem tengdust rannsóknarstofunni í Wuhan í Kína.
Arnþrúður áréttaði, að ekki hefði verið sannað að Fauci hefði framið glæp. Yfirheyrsla þingnefndar væri ekki réttarhald og Fauci hefði ekki verið ákærður vegna þeirra atriða sem Guðmundur lýsti. Það kynni þó að breytast síðar eftir því sem málinu vindi fram.
Dagbækur og tölvupóstar til skoðunar
Guðmundur Franklín sagði dagbækur Fauci og tölvupósta geta sýnt fram á misræmi milli einkasamskipta hans og þess sem hann sagði opinberlega. Gögnin meðal annars varpi ljósi á samskipti Fauci við David Morens, fyrrverandi ráðgjafa hans. Dagbækur Fauci voru birtar að frumkvæði Rand Paul skömmu fyrir yfirheyrsluna. Í þeim koma fram samskipti Fauci við fjölmiðla, hugleiðingar hans um viðbrögð stjórnvalda við faraldrinum og samtöl um mögulegan uppruna veirunnar.
Gaf Fauci vísvitandi rangar upplýsingar?
Þá sagði Guðmundur, Fauci þurfa að útskýra ummæli í gögnunum og bera þau saman við fyrri framburð sinn fyrir Bandaríkjaþingi. Ef hann gæfi vísvitandi rangar upplýsingar undir eiði gæti það orðið sjálfstætt sakamál. Arnþrúður benti á að Fauci gæti við ákveðnar aðstæður neitað að svara spurningu ef svarið yrði til þess að hann bæri sakir á sjálfan sig og leitt til sakfellingar. Slík ákvörðun Frauci gæti þó aukið enn frekar á deilurnar um störf hans og hvort opinber framsetnings hans í Covid 19 málinu hafi verið villandi.
Morens fyrrverandi ráðgjafi Fauci ákærður
Arnþrúður fjallaði einnig um mál David Morens sem var háttsettur ráðgjafi við stofnun Fauci í áratugi. Morens var ákærður í apríl 2026 fyrir samsæri gegn Bandaríkjunum og fyrir að fela, eyða og falsa opinber gögn sem tengdust COVID-rannsóknum.
Ákæran byggist meðal annars á því að Morens hafi notað einkapóst til að komast hjá upplýsingalögum og falið samskipti um rannsóknarstyrki. Hluti styrkjanna rann til verkefnis sem síðar veitti Wuhan-veirufræðistofnuninni í Kína undirverktakastyrk.
Nýbirtar dagbókarfærslur sýna að þeir ræddu saman um ásakanir vegna rannsóknanna og uppruna COVID-19. Þingnefndin vill kanna hvort samskiptin stangist á við fyrri framburð Fauci um vitneskju hans af háttsemi Morens.
Náðunin enn umdeild
Fram kom að Joe Biden fyrrverandi Bandaríkjaforseti hafi veitt Fauci fyrirbyggjandi náðun áður en hann lét af embætti. Guðmundur sagði óvissu ríkja um gildi hennar vegna þess að undirskrift Bidens hefði verið sett á skjöl með sjálfvirkum penna.
Yfirheyrslan mun snúast bæði um efni nýju gagnanna og hvort þau sýni misræmi í fyrri framburði hans.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
