
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, fjölluðu í Heimsmálunum í dag um fólksstrauminn að spænsku sjálfstjórnarborgunum Ceuta og Melilla við strendur Marokkó. Guðmundur sagði komu fólksins tengjast loforðum Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar um 500.000 dvalarleyfi auk skipulagðra flutninga glæpagengja frá ríkjum sunnan Sahara, Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Loforð um dvalarleyfi ýtti undir væntingar
Guðmundur sagði Pedro Sánchez hafa lofað að veita 500.000 innflytjendum dvalarleyfi á Spáni. Þau skilaboð hefðu borist langt út fyrir landamæri Evrópu og skapað væntingar meðal fólks í Norður-Afríku og ríkjum sunnan Sahara um að hægt væri að komast inn á spænskt yfirráðasvæði og öðlast þar dvalarrétt.
Stór hluti hópsins kom frá Senegal, Gambíu og öðrum ríkjum sunnan Sahara en ekki frá Marokkó. Glæpagengi hefðu flutt ungu mennina yfir mörg landamæri og tekið greiðslu fyrir að koma þeim norður að spænsku yfirráðasvæðunum í Afríku.
Ceuta og Melilla væru hluti Spánar og sömu reglur giltu þar og annars staðar á spænsku yfirráðasvæði. Þegar fólkið hefði komist yfir landamærin væri það því þegar komið inn á yfirráðasvæði Evrópusambandsins.
Marokkó beitti Spán pólitískum þrýstingi
Samskipti Spánar og Marokkó voru einnig dregin inn í skýringuna á því hvers vegna svo stór hópur komst að landamærunum. Guðmundur fjallaði um ásakanir um að yfirvöld í Marokkó hefðu hleypt fólkinu áfram til að þrýsta á spænsk stjórnvöld vegna Ceuta og Melilla sem Marokkó gerir tilkall til.
Arnþrúður rifjaði jafnframt upp viðbrögð Sánchez og sagði hann hafa viðurkennt að stefna hans væri meðvituð. Hann hafi sagt strax að ákvörðunin tengdist pólitískum hagsmunum hans og flokkur hans, spænskir sósíalistar væru að tryggja sér völd áfram og þyrftu fleiri atkvæði.
Á sama tíma höfðu upplýsingar um fyrirhugaðar komur birst á nokkrum Facebook-síðum áður en fólksstraumurinn hófst. Guðmundur sagði dagsetninguna hafa verið auglýsta fyrir fram og yfirvöld og félagasamtök hefðu því vitað að stór hópur væri á leiðinni.
Þúsundir enn á spænsku yfirráðasvæði
Fréttir um að fólkinu hefði öllu verið vísað aftur til Marokkó séu ekki réttar og gefi ranga mynd af stöðunni að mati Guðmundar. Hann sagði þúsundir enn vera á spænsku yfirráðasvæði og spænskir hermenn hefðu ekki fengið heimild til að handtaka fólkið heldur aðeins vísa því á landamærin.
Rauði krossinn og evrópsk félagasamtök hefðu tekið við fólkinu, útvegað mat og klæði og komið hluta hópsins áfram til meginlands Spánar. Arnþrúður vakti athygli á að þrátt fyrir staðsetningu Ceuta í Norður-Afríku væri borgin innan spænsks yfirráðasvæðis og þar með tengd Schengen-svæðinu.
Ítalía hótaði að rifta Schengen-samstarfinu
Viðbrögð Giorgiu Meloni og ítalskra stjórnvalda færðu málið yfir á vettvang Schengen. Arnþrúður benti á að boðað hefði verið til krísufundar vegna stöðunnar síðasta þriðjudag en Guðmundur sagði Ítalíu hafa hótað að rifta Schengen-sáttmálanum og hefja vegabréfaeftirlit með fólki sem kæmi frá Spáni.
Fleiri Evrópuríki tóku undir kröfuna um aðgerðir og kölluðu eftir harðari vörnum á ytri landamærum sambandsins. Jafnframt bárust upplýsingar um nýtt áhlaup sem boðað hafði verið 15. ágúst n.k.,og óvissa ríkti um hversu fjölmennur næsti hópur yrði.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
