Heimsmálin: Fullyrðingar um vopnaskort Rússa byggðar á „fullkominni óskhyggju“

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu í Heimsmálunum um hernaðarstöðu Rússlands og þá mynd sem birtist af getu rússneska hersins. Arnþrúður vísaði til frétta um að Rússar væru að verða uppiskroppa með hermenn og vopn og árásir á olíuhreinsistöðvar hefðu veikt stöðu þeirra. Haukur hafnaði þeirri lýsingu og sagði hana byggða á „fullkominni óskhyggju“. Hann sagði Rússa búa yfir miklum vopnabirgðum og framleiðslugetu og hafa enn frumkvæðið á vígvellinum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Segir Rússa hafa yfirhöndina

Arnþrúður spurði hvort drónaárásir Úkraínu langt inn í Rússland sýndu að Úkraínumenn væru komnir með yfirburði í stríðinu.

Haukur svaraði því neitandi og sagði Rússa hafa yfirhöndina sem skipti miklu máli í hernaði. Þeir réðu gangi stríðsins að miklu leyti og hefðu stöðuna í sínum höndum þrátt fyrir árásir Úkraínu á rússneskt landsvæði.

Hann sagði jafnframt að sú mynd sem gefin væri af gangi stríðsins á Vesturlöndum væri ekki í samræmi við stöðuna eins og hann sæi hana.

Mikil vopnaframleiðsla austan Úralfjalla

Arnþrúður vísaði til þess að reglulega væri greint frá því að Rússar ættu í erfiðleikum með mannafla og væru að verða uppiskroppa með vopn.

Haukur kallaði slíkar fullyrðingar „fullkomna óskhyggju“. Hann sagði Rússa eiga gríðarlegar birgðir hergagna og búa yfir umfangsmiklum hergagnaiðnaði. Stór hluti framleiðslunnar væri austan Úralfjalla þar sem byggð hefði verið upp mikil iðnaðargeta.

Drónaframleiðsla hefði jafnframt aukist verulega og Haukur sagði Rússa framleiða mikið magn af drónum og öðrum hergögnum til notkunar í stríðinu.

Rússar geta beitt meiri hernaðarmætti

Haukur sagði Rússa ekki hafa beitt öllum þeim hernaðarmætti sem þeir byggju yfir. Þeir hefðu meðal annars yfirburði í lofti og möguleika á að auka umfang árása verulega.

Að hans sögn væri því ekki hægt að álykta út frá árásum Úkraínu á olíumannvirki eða öðrum skotmörkum inni í Rússlandi að hernaðargeta landsins væri að bresta. Haukur taldi stöðuna ekki benda til þess að Rússar væru að veikjast með þeim hætti sem haldið hefði verið fram.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila