
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu í Heimsmálunum í dag, um Grænland og þá miklu ógnarumræðu sem fylgdi áhuga Donalds Trump, Bandaríkjaforseta á landinu. Samningar stóðu á sama tíma yfir og þegar Íslendingar gengu til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið var Grænlandsmálið þegar komið mjög langt og í raun búið. Já menn töluðu á sama tíma við kjósendur hér á landi eins og Íslendingum stafaði ógn af Bandaríkjaforseta og dreifðu þeim áróðri. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Samningar í gangi á meðan ógnarmyndin var ráðandi
Almenningi var sýnd sú mynd að af Trump stafaði mikil ógn vegna Grænlands og að staðan væri orðin alvarleg fyrir Danmörku og önnur ríki á svæðinu.
Þegar þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið fór fram var málið þegar komið það langt að niðurstaðan var í raun komin í höfn. Þetta setur þá miklu umræðu sem fór fram um Grænland og Bandaríkin á sama tíma í annað samhengi. Þetta segir mest til um þann áróður sem var í gangi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Danir upplýstu Ísland ekki
Samskipti Íslands og Danmerkur komu einnig til skoðunar. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefði getað haft samband við íslensk stjórnvöld og upplýst þau um hversu langt málið væri komið. Það gerðist ekki og íslensk stjórnvöld fengu ekki þær upplýsingar frá Dönum áður en upplýst var um samningana.
Fram kom í þættinum að þetta sýndi hversu lítið vægi íslensk stjórnvöld hefðu þegar stór mál væru afgreidd milli nánustu samstarfsríkja.
Önnur staða en birtist almenningi
Þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhaldandi viðræður Íslands við ESB fór því fram á meðan mikilvægar breytingar í samskiptum Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands voru þegar mun lengra komnar en almenningur hafði fengið að vita á sama tíma og kjósendur hafi verið hræddir með áróðri um Trump og Grænlandsmálið.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
