Heimsmálin: Greta Thunberg hlær að loftslagsmótmælendum

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum á Útvarpi Sögu, um upptöku úr heimildarmynd þar sem Greta Thunberg er spurð út í loftslagsmótmæli í Berlín. Guðmundur lýsti því hvernig Greta hefði skellt upp úr þegar mótmælin bar á góma og spurt hvort fólk væri enn að standa í þeim. Þau ræddu jafnframt hvernig Greta hefði verið kynnt sem leiðandi baráttukona í loftslagsmálum og gagnrýndu ráðstöfun fjármuna til alþjóðlegra loftslagsaðgerða. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Ummæli Gretu um mótmælin vekja athygli

Guðmundur greindi frá því að verið væri að gera heimildarmynd um Gretu Thunberg og í upptöku tengdri myndinni hefði hún verið spurð hvers vegna hún hefði ekki farið til Berlínar þar sem loftslagsmótmæli færu fram.

Samkvæmt frásögn hans hefði Greta skellt upp úr og svarað á þá leið hvort fólk væri enn að mótmæla. Í kjölfarið hefði verið kallað eftir því að upptakan yrði stöðvuð.

Guðmundur sagði myndskeiðið hafa farið í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum og vakið viðbrögð meðal þeirra sem hefðu fylgst með loftslagsbaráttu hennar.

Hann gagnrýndi að Greta hefði um árabil verið ein helsta táknmynd loftslagsmótmæla en virtist nú gera lítið úr mótmælum sem tengdust sömu baráttu.

Gagnrýna markaðssetningu Gretu sem loftslagsbaráttukonu

Arnþrúður rifjaði upp hvernig Greta hefði verið kynnt fyrir almenningi þegar hún var barn og verið merkaðssett sem alþjóðleg táknmynd loftslagsbaráttunnar.
Hún nefndi sérstaklega að skólabörn hefðu verið hvött til að taka þátt í loftslagsmótmælum og sleppa skólasókn til að mæta á mótmælafundi. Slíkar aðgerðir hefðu einnig farið fram á Austurvelli í Reykjavík.

Guðmundur tengdi uppgang Gretu við Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðaefnahagsráðið í Davos. Hann gagnrýndi hvernig barátta hennar hefði verið kynnt og nýtt í alþjóðlegri umræðu um loftslagsmál.

Hann ræddi jafnframt viðbrögð Reuters við dreifingu upptökunnar og sagði fréttastofuna hafa birt annað efni um Gretu eftir að myndskeiðið vakti athygli.

Spyrja hvert fjármunir til loftslagsaðgerða renni

Arnþrúður beindi umræðunni að loftslagsráðstefnunni í Tyrklandi og þeim kröfum sem þar hefðu komið fram um aukna fjármögnun loftslagsaðgerða.
Hún spurði hvernig fjármununum væri ráðstafað og hver hefði eftirlit með því að þeir skiluðu sér til þeirra verkefna sem þeim væri ætlað að fjármagna.

Guðmundur gagnrýndi rekstrarfyrirkomulag ýmissa félagasamtaka NGO og sjóða sem störfuðu á alþjóðavettvangi. Hann sagði skort á eftirliti skapa svigrúm fyrir óeðlilega ráðstöfun fjármuna og nefndi meðal annars ferðakostnað og dýra hótelgistingu í tengslum við slíka starfsemi.

Arnþrúður vísaði einnig til frétta frá Bandaríkjunum um fjármuni og lyfjakaup vegna ebólu sem hefðu ekki skilað sér til fyrirhugaðra verkefna.

Gagnrýna fjármögnun alþjóðlegra samtaka

Guðmundur og Arnþrúður ræddu starfsemi bandarísku þróunaraðstoðarstofnunarinnar USaid sem Elon Musk og félagar stöðvuðu og þær upplýsingar sem hafa komið fram um meðferð fjármuna stofnunarinnar. Alþjóðlegir fjölmiðlar hefðu fengið fjármuni úr slíkum sjóðum sem hefðu átt að fara til bágstaddra landa en notað þess í stað í áróður stærri fjölmiðla víða um heim.

Guðmundur sagði nauðsynlegt að upplýsa hvernig fjármunum væri úthlutað og í hvað þeim væri varið.

Þau tengdu umræðuna við loftslagsaðgerðir og þá miklu fjármuni sem mörg ríki hefðu skuldbundið sig til að leggja fram á næstu árum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila