Heimsmálin: Hagsmunatengdar fréttastofur reyna að móta umræðuna

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum um fjölmiðla, alþjóðlegar fréttastofur og áhrif samfélagsmiðla á miðlun upplýsinga. Fram kom að stór hluti fréttaflutnings á Vesturlöndum byggðist á efni frá fáum alþjóðlegum fréttastofum og hagsmunatengsl þeirra hefðu áhrif á hvernig alþjóðleg málefni væru kynnt almenningi þar á meðal til Íslands. Útrvarp hefur í með Heimsmálunum leitast við að fjalla um andstæð sjónarmið af erlendum vettvangi til þess að Íslendingar eigi þess kost að heyra aðra hlið mála sem væru helst í umræðunni hverju sinni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Samfélagsmiðlar tempra ráðandi stöðu hefðbundinna miðla

Í þættinum var rætt um hvernig samfélagsmiðlar hefðu breytt fjölmiðlaumhverfinu á undanförnum árum. Guðmundur sagði að almenningur ætti nú auðveldara með að nálgast upplýsingar beint frá stjórnmálamönnum, embættismönnum og öðrum áhrifamönnum án þess að þær færu í gegnum hefðbundnar ritstjórnir.

Útvarp Saga með aðra hlið mála

Arnþrúður benti á að megin tilgangur Heimsmálanna á Útvarpi Sögu væri einmitt að kynna sjónarmið sem kæmu ekki fram í ríkjandi fjölmiðlaumræðu hér á landi. Það væri nauðsynlegt að Íslendingar ættu þess kost að heyra önnur sjónarmið um málefni af erlendum vettvangi en þau sem væru “mötuð” hingað til lands í gegnum pólitíska og hagsmunatengda erlenda fjölmiðla. Það væri hlutverk fjölmiðla að leitast við að koma með andstæð sjónarmið. Útvarp Saga væri einfaldlega að segja fréttir frá þeirri hlið mála sem gjarnan væri þögguð niður á Íslandi. Fjölmiðlar ættu að forðast kranablaðamennsku og apa upp hver á eftir öðrum til þess að tilheyra ímynduðum meirihluta.

Reuters og AFP í miðju alþjóðlegs fréttakerfis

Guðmundur benti á að fjölmargir fjölmiðlar um heim allan byggðu fréttaflutning sinn að stórum hluta á efni frá fáum aðilum og nefndi sérstaklega Reuters og AFP. Að hans mati hefði þetta í för með sér að sambærilegar áherslur og sjónarmið birtust í fjölmiðlum í mörgum löndum. Hann gagnrýndi jafnframt fréttaflutning RÚV sem styddist að verulegu leyti við efni frá sömu alþjóðlegu fréttaveitum.

Eignarhald fjölmiðla og áhrif á fréttaflutning

Arnþrúður og Guðmundur ræddu einnig eignarhald fjölmiðla og fréttastofa. Arnþrúður sagði mikilvægt að almenningur skoðaði hverjir stæðu að baki stærstu fjölmiðlum heims og hvaða hagsmunir kynnu að hafa áhrif á fréttaflutning.

Margir gerðu sér ekki grein fyrir hversu fáir aðilar kæmu að framleiðslu og dreifingu stórs hluta þeirra alþjóðafrétta sem birtust daglega í fjölmiðlum. Nauðsynlegt væri að bera saman ólíkar heimildir og kynna sér fleiri sjónarmið en þau sem birtust í hefðbundnum fréttamiðlum.

Starmer-málið tekið sem dæmi um gagnrýna nálgun

Sem dæmi um mikilvægi þess að skoða fréttir frá fleiri en einni hlið vísaði Arnþrúður til fréttaflutnings um mál sem tengdist Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Þar hafði athygli beinst að meintri aðkomu rússneskra aðila við íkveikjumál. Slíkt sýndi mikilvægi þess að fylgjast með framvindu mála og meta fréttir á grundvelli fleiri heimilda en þeirra sem birtust fyrst. Guðmundur sagði sannleikann vera að finna í máli sem tengdist heimsókn Starmers til Úkraínu og Zelensky hefði útvegað honum 3 unga drengi. Drengirnir væru komnir til London og létu Starmer ekki í friði og hefðu meðal annars kveikt í bíl hans ásamt fleiru. Nú væri sagt að rússneskir aðilar hefðu greitt fyrir ódæðið.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila