Heimsmálin: Innflytjendaóreiða, skandalar og árásir á tjáningarfrelsi skýra vanda Keir Starmer

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu í Heimsmálunum í dag um stöðu Bretlands undir stjórn Keir Starmers. Kom fram að sú skýring sem væri mest í umræðunni um að Brexit væri meginorsök þeirra vandamála sem Bretland glími við í dag. Skýringarnar væri fremur að finna í stefnu stjórnvalda í innflytjendaóreiðu-,orku- og öryggismálum. Margvíslegir skandalar hafi komið upp eins og sú ákvörðun Starmers að skipa Mandelson sem sendiherra í Bandaríkjunum gegn betri vitund og hvernig Starmer hefur svipt fólk í þúsundatali tjáningafrelsi og látið loka það inn í fangelsi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Brexit skýrir ekki stöðu Bretlands

Í þættinum var rætt um að meginstraumsfjölmiðlar segðu að Brexit væri ástæða þess að Bretar væru í efnahagsvanda og útganga úr Evrópusambandinu hefi verið mistök. Slíkt tal væri fyrst og fremst áróður og til þess fallinn að beina athyglinni frá raunverulegri ástæðu. Það væri fyrirliggjandi að margvíslegir skandalar í tengslum vð Starmer væru búnir að æra marga Breta og sömuleiðis fólk úr hans eigin flokki. Sú ákvörðun Starmers að skipa Mandelson sem sendiherra í Bandaríkjunum á sínum tíma hefði komið eins og þruma yfir Breta því Mandelson var í nánum tengslum við kynferðisbrotamanninn Epstein og fleiri háttsetta Breta. Starmer hafi neitað að hafa þekkt þau tengsl en samt sem áður kom í ljós að hann hafði eytt rúmlega 1.400 skilaboðum úr símanum sínum til Mandelson. Keir Starmer hafi verið sakaður um að hafa enga raunverulega stefnu og brugðist Bretum í orkumálum og efnahagsmálum sem hann hafi ekki ráðið við.

Innflytjendaóreiða hafi breytt samfélaginu

Þá kom fram í þættinum að ólöglegur innflutningur fólks yfir Ermarsund til Bretlands hafi skapað stjórnvöldum mikinn vanda og kostnaður ríkisins vegna húsnæðis, heilbrigðisþjónustu og annarrar opinberrar þjónustu hefði aukist verulega. Væru þau mál komin í algjört óefni á kostnað breskra skattgreiðenda, bæði að þvi er varðar efnahagslega og umturnun á samfélaginu. Ástæðan væri fyrst og fremt yfirgangur íslamista sem legðu undir sig heilu hverfin og borgarhluta í stærri borgum.
Rætt var um þessar samfélagsbreytingar sem stjórnvöld í Bretlandi hefðu vanmetið. Áhrif íslamista og krafa þeirra um að innleiða Sharia-lög væri búin að skapa mikla óánægju og spennu í samfélaginu sem hafi leitt til bæði harðra mótmæla og alvarlega átaka og glæpastarfsemi.

Starmer réðst á tjáningarfrelsi fólks

Í þættinum kom fram að lögreglunni í Bretlandi hafi verið fyrirskipað að grípa til aðgerða, vegna ummæla á samfélagsmiðlum sem fólk léti frá sér fara. Starmer hafði reynt að banna samfélagsmiðla eins og Tiktok og X.com og til að forðast að fólk gæti fengið upplýsingar um það sem hann og fleiri væru í raun og veru að aðhafast. Öll gagnrýni á stjórnvöld og islamista hefði verið talin hatursorðræða og hefðu fjölmargir verið dæmdir til fangelsisvistar. Þessi framganga Starmers hefði lagst mjög illa í breta og hefði meðal annars skapað þá andúð sem hann mætti síðustu mánuði og hefði í raun orðið til þess að hann gafst upp í embætti forsætisráðherra.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila