Heimsmálin: Óvissa um öryggi úkraínskra barna undir vernd Evrópuráðsins

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu, í Heimsmálunum um ásakanir Úkraínu og alþjóðlegra stofnana um að rússnesk stjórnvöld hafi flutt þúsundir barna frá Úkraínu til Rússlands. Í viðtalinu var sérstaklega rætt um aðgerðir Evrópuráðsins vegna barnanna og þátt fyrrverandi framkvæmdastjóra Evrópuráðsins. Þar var Thorbjørn Jagland fyrrverandi forsætisráðherra Noregs sem nú hefur verið handtekinn af KRIPOS lögreglunni í Noregi fyrir margvíslegt misferli í samvinnu við kynferðisbrotamanninn Epstein á sama tíma og hann var framkvæmdastjóri Evrópuráðsins. Haukur hafnaði því að um skipulögð barnarán af hálfu Rússa væri að ræða og sagði börnin fyrst og fremst hafa verið flutt frá stríðssvæðum í austurhluta Úkraínu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Börn flutt frá bardagasvæðum í Donetsk og Luhansk

Haukur sagði að um væri að ræða börn frá rússneskumælandi svæðum í austurhluta Úkraínu þar sem átök hefðu staðið yfir frá árinu 2014. Hann sagði mörg barnanna hafa orðið viðskila við foreldra sína í átökum eða verið flutt frá borgum þar sem loftárásir og stórskotaliðsárásir hefðu valdið miklu tjóni. Í viðtalinu sagði Haukur að börnin hefðu verið flutt til svæða innan Rússlands þar sem yfirvöld reyndu að skrá uppruna þeirra, finna ættingja og sameina fjölskyldur á ný. Hann nefndi að Katar, Óman og Sameinuðu arabísku furstadæmin hefðu komið að milligöngu í einstökum málum þar sem börn hefðu verið sameinuð foreldrum sínum eða öðrum ættingjum.

Haukur sagði jafnframt að margir íbúar austurhluta Úkraínu hefðu sjálfir flúið til Rússlands þar sem fjölskyldur þeirra væru rússneskumælandi og tengsl við Rússland sterk.

Hvað verður um börnin sem Evrópuráðið segist ætla að bjarga?

Arnþrúður sagði að mikilvægt væri að skýrt lægi fyrir hvert ætti að fara með þau börn sem Evrópuráðið og aðrar alþjóðastofnanir segjast vilja „bjarga“ frá Rússlandi. Því væri þeim ekki skilað til Úkraínu spurði Arnþrúður? Hún sagði umræðuna ekki aðeins snúast um að ná börnum frá átakasvæðum heldur einnig um það hver tæki við þeim, undir hvaða eftirliti þau yrðu og hvernig tryggt yrði að rekjanleiki þeirra glataðist ekki.

Thorbjorn Jagland nú í haldi norsku KRIPOS lögreglunnar

Arnþrúður vísaði þar til þess að Thorbjørn Jagland, fyrrverandi framkvæmdastjóri Evrópuráðsins á árunum 2009 til 2019, hefði verið í nánu sambandi við kynferðisbrotamanninn Epstein eins og komið hefur fram í Epstein-skjölunum sem hafa verið til mikillar umræðu erlendis. Jagland, væri nú í haldi norsku Kripos lögreglunnar sem væri með hans mál til rannsóknar. Hún sagði að í ljósi þeirrar umræðu væri eðlilegt að spurt væri hvernig Evrópuráðið hygðist tryggja öryggi barnanna og hvaða eftirlitskerfi yrðu viðhöfð ef börn yrðu flutt milli landa eða sett undir vernd alþjóðlegra stofnana. Arnþrúður sagði afar mikilvægt að ekki yrði aðeins rætt um pólitíska hlið málsins heldur einnig hvert börnin færu í reynd og hver bæri ábyrgð á þeim eftir að þau væru tekin úr stríðsaðstæðum.

Haukur gagnrýnir Evrópuráðið harðlega

Haukur tók undir áhyggjur Arnþrúðar og gagnrýndi Evrópuráðið harðlega í viðtalinu. Hann sagði að umræðan um úkraínsku börnin væri mjög pólitísk og Vesturlönd hefðu einblínt á ásakanir gegn Rússlandi án þess að ræða nægilega hvað tæki við hjá alþjóðlegum stofnunum og milligönguaðilum. Hann sagði að í ljósi þeirrar umræðu væri mikilvægt að allar ákvarðanir um vistun og flutning barna frá stríðssvæðum væru gegnsæjar og rekjanlegar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila