
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu í Heimsmálunum í dag, um nýja aðgerð rússneskra yfirvalda þar sem birtur hefur verið nákvæmur listi yfir staðsetningar í Evrópu sem tengjast framleiðslu og samsetningu drónaíhluta fyrir Úkraínu. Haukur sagði að listinn hefði verið gefinn út rétt fyrir helgi og innihaldi bæði verksmiðjur og smærri verkstæði í Evrópu sem starfi fyrir vesturlönd. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Verkstæði og verksmiðjur tengd drónum skilgreind sem skotmörk
Í máli Hauks kom fram að listinn taki til staða í Póllandi, Þýskalandi, Danmörku, Lettlandi, Litháen, Bretlandi, Ítalíu og Tyrklandi. Um sé að ræða tiltekin verkstæði og framleiðslurými þar sem hlutar í dróna eru framleiddir eða settir saman áður en þeir eru sendir til Úkraínu. Hann lýsti því að sum þessara rýma gætu verið í iðnaðarhverfum eða jafnvel í litlum einingum sem líkjast bílskúrum eða almennu atvinnuhúsnæði.
Þáttur í hernaðaraðgerðum gegn Rússlandi
Haukur sagði að rússnesk yfirvöld teldu sig vita nákvæmlega hvar þessi starfsemi færi fram og að listinn væri settur fram í varnarmálasamengi þar sem slík aðstaða væri skilgreind sem þáttur í hernaðaraðgerðum gegn Rússlandi.
Danir hafa verið varaðir við
Í viðtalinu var sérstaklega vikið að Danmörku þar sem nefnd voru svæði í Kaupmannahöfn, Álaborg og Óðinsvé sem dæmi um staðsetningar þar sem slík starfsemi gæti átt sér stað. Fram kom að Danir hefðu þegar fengið viðvaranir sem þeir túlka sem möguleg skilaboð frá Rússlandi.
Haukur sagði að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur hafi verið áberandi hvað stuðning varðar við Zelensky sem hefði gert landið meira áberandi í augum rússneskra stjórnvalda. Haukur sagði að það tengdist því beint að Danmörk væri á listanum.
Deilt um lögmæti mögulegra árása
Haukur sagði að rússnesk yfirvöld líti á þessa staði sem lögmæt skotmörk þar sem þar fari fram framleiðsla á búnaði sem notaður sé í hernaði gegn Rússlandi. Hann benti þó á að þetta væri jafnframt stór lagaleg spurning þar sem um væri að ræða staði innan ríkja sem ekki eru beinir þátttakendur í stríðinu. Í þættinum kom fram að ef ráðist yrði á slíka staði væri það veruleg breyting á eðli átaka þar sem hernaðaraðgerðir næðu þá inn á svæði Vestur-Evrópu með beinum hætti.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
