Heimsmálin: Rússar fagna friðarviðræðum Bandaríkjanna og Írans

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Hauk Hauksson fréttamann í Moskvu, í Heimsmálunum um stöðuna í Miðausturlöndum og tilraunir til að ná samkomulagi milli Bandaríkjanna og Írans. Í umræðunni kom fram að rússnesk stjórnvöld fögnuðu öllum skrefum sem gætu dregið úr spennu á svæðinu og komið í veg fyrir frekari hernaðarátök. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Moskva styður áframhaldandi samningaviðræður

Haukur sagði að afstaða rússneskra stjórnvalda væri skýr þegar kæmi að samskiptum Bandaríkjanna og Írans. Rússar vildu sjá áframhaldandi viðræður og pólitíska lausn fremur en ný hernaðarátök á svæðinu.

Í umræðunni kom fram að nokkrar tilraunir hefðu verið gerðar á undanförnum árum til að koma á samkomulagi um kjarnorkumál Írans og stöðu landsins gagnvart Vesturlöndum. Haukur sagði að Moskva liti svo á að stöðugleiki í Persaflóasvæðinu væri mikilvægur fyrir alþjóðleg viðskipti og öryggi og því væri friðsamleg lausn talin æskilegri en frekari stigmögnun.

Ólíkar áherslur innan Trump-stjórnarinnar

Fram kom í þættinum að ólíkar áherslur væru innan Trump -stjórnarinnar þegar kæmi að Íran. Donald Trump vildi frekar ná samkomulagi sem gæti dregið úr spennu á svæðinu en að áhrifamiklir ráðherrar innan stjórnarinnar hefðu verið opnari fyrir harðari aðgerðum.

Stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth og utanríkisráðherrann Marco Rubio, standi nær þeirri stefnu að beita Íran auknum þrýstingi. Á móti hefði varaforsetinn J.D. Vance verið andvígur frekari stigmögnun og lagt meiri áherslu á diplómatískar lausnir.

Haukur taldi að áhrif Ísraels á þessa umræðu væru einnig veruleg og nefndi Benjamin Netanyahu sérstaklega í því samhengi. Að hans mati hefðu ísraelsk stjórnvöld lengi litið á Íran sem helsta öryggisógn sína og því þrýst á um harðari viðbrögð af hálfu Bandaríkjanna.

Áhrif Ísraels á þróun mála

Einnig var rætt stöðu Ísraels og áhrifum stjórnvalda í Tel Aviv á þróun mála. Haukur sagði að í Moskvu væri litið svo á að ríkisstjórn Benjamin Netanyahu hefði haft veruleg áhrif á umræðuna um Íran undanfarin ár. Hann taldi að ísraelsk stjórnvöld litu Íran sem eina stærstu öryggisógn sína og það skýrði að miklu leyti hvers vegna þrýstingur hefði verið á harðari aðgerðir gagnvart Teheran. Um leið væri ljóst að stór hluti alþjóðasamfélagsins hefði áhuga á að koma í veg fyrir frekari stigmögnun sem gæti haft áhrif langt út fyrir Miðausturlönd.

Óttast víðtækari átök á svæðinu

Haukur sagði að stærsta áhyggjuefnið væri átök milli Ísraels og Írans gætu haft áhrif á fleiri ríki í Miðausturlöndum og skapað óstöðugleika á einu mikilvægasta orku- og flutningssvæði heims.

Í umræðunni kom fram að mikilvægar siglingaleiðir á borð við Hormússund skiptu miklu máli fyrir heimsviðskipti og frekari átök á svæðinu gætu haft áhrif á orkuframboð og alþjóðleg efnahagsmál. Af þeim sökum teldu rússnesk stjórnvöld mikilvægt að samningaleiðin yrði áfram farin.

Að mati Hauks vilja flest ríki á svæðinu forðast frekari stigmögnun og því sé enn von um að samningaviðræður geti komið í veg fyrir víðtækari átök þrátt fyrir áframhaldandi spennu milli Írans, Ísraels og Bandaríkjanna.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila