
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu í Heimsmálunum um stöðuna í Miðausturlöndum og tengsl Rússlands og Írans. Fram kom að rússnesk stjórnvöld líti á Íran sem bandamann og hjálp þeim með vopn í stríðinu. Samstarf ríkjanna hafi eflst í ljósi átaka við Bandaríkin og Ísrael. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Zakharova staðfestir stöðu Írans innan BRICS
Í máli Hauks kom fram að hann hefði spurt Maríu Zakharovu, talskonu rússneska utanríkisráðuneytisins, um samskipti ríkjanna á blaðamannafundi fyrir skömmu. Hún hafi staðfest að Íran væri hluti af BRICS-samstarfinu og það hefði pólitíska þýðingu í samskiptum ríkjanna. Arnþrúður benti á nýja fréttir sem segðu að Rússar hefðu verið að senda Kami Kaze vopn til Íran á sunnudaginn s.l. Haukur sagði að Vladimir Putin liti á Íran sem bandamann í átökum á svæðinu og þetta samstarf næði bæði til pólitískra og hernaðarlegra þátta.
Vopnasendingar og loftvarnir frá Rússum
Í viðtalinu kom fram að Rússar væru að styðja Íran með hergögnum, þar á meðal loftvarnarkerfum og upplýsingum um hernaðarlega innviði. Einnig var vísað til þess að Kína væri hluti af þessari þróun og samvinna ríkjanna væri að aukast.
Áhrif á samskiptin við Ísrael
Haukur benti á að þessi þróun gæti haft áhrif á samskipti Rússlands og Ísraels sem hefðu áður verið stöðug. Hann sagði að Sergey Lavrov utanríkisráðherra Rússlands og önnur rússnesk stjórnvöld hefðu gagnrýnt aðgerðir Ísraels á svæðinu og talið þær brjóta gegn alþjóðalögum. Í umræðunni var vísað til aðgerða sem beinast að diplómötum og borgaralegum skotmörkum og slíkt væri talið óásættanlegt í alþjóðasamskiptum.
Netanyahu og átökin á svæðinu
Þá kom fram að aðgerðir Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hafi aukið spennu á svæðinu. Haukur sagði að rússnesk stjórnvöld litu á þessa þróun sem hættulega og gætu haft áhrif á frekari samskipti ríkjanna.
Óvissa um þróun samskipta
Samkvæmt því sem fram kom er staðan orðin afar viðkvæm þar sem hernaðarlegt samstarf Rússlands og Írans fer vaxandi á sama tíma og Ísrael er virkur þátttakandi í átökum á svæðinu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
