Heimsmálin: Samningur Trump og Íran gæti verið fyrirboði friðar í Miðausturlöndum

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu í þættinum Heimsmálunum í dag um samning Bandaríkjanna og Írans sem búið er að samþykkja af báðum aðilum, með rafrænum hætti en formleg undirritun fer fram í Swiss þann 19. júní n.k. Í umræðunni kom fram að það samkomulag sem Trump væri búinn að gera við Íran hefði veruleg áhrif á stöðuna í Miðausturlöndum, olíuflutninga um Hormússund og samskipti Írans við nágrannaríki sín. Þessi samningur væri fyrirboði friðar á svæðinu.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Hormússund og auðgað úran stóru málin í samningnum

Arnþrúður benti á að víða í fjölmiðlum væri dregið í efa að írönsk stjórnvöld myndu samþykkja samkomulag af því tagi sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði kynnt. Guðmundur sagðist hins vegar telja að verulegur árangur hefði þegar náðst í viðræðunum, þótt efni samkomulagsins hefði ekki verið birt opinberlega.

Kom fram að eitt mikilvægasta atriðið snerist um auðgað úran sem Íranar hafa yfir að ráða. Að mati Guðmundar væri áhersla Bandaríkjastjórnar á að tryggja eftirlit með því efni og koma í veg fyrir að það yrði nýtt til frekari þróunar kjarnorkuvopna. Þá væri verið að greina efnið til þess að kanna hvort það hafi komið frá Bandaríkjunum og ef svo væri, hver bæri ábyrgð á því.

Þegar Arnþrúður spurði hvort breytingar hefðu orðið á samningahópi Írana sagði Guðmundur að þrýstingur á írönsk stjórnvöld hefði aukist verulega og að stjórnvöld í Teheran sæju hag sinn í að draga úr spennu við Bandaríkin.

Hormússund lykilþáttur í samkomulaginu

Stór hluti umræðunnar snerist að Hormússundi, einni mikilvægustu siglingaleið heims fyrir olíuútflutning. Guðmundur taldi að fyrirhugað samkomulag gæti aukið stöðugleika á svæðinu og dregið úr þeirri óvissu sem reglulega hefur skapast vegna átaka og hótana um lokanir siglingaleiða. Kom fram að nú þegar hefði verð á olíu lækkað verulega eftir að í ljós kom að samningurinn væri kominn í höfn.
Guðmundur sagði að bandarísk stjórnvöld hygðust leggja áherslu á öryggi siglinga um svæðið, en að ríki sem nytu þeirrar verndar myndu jafnframt bera kostnað af henni.

Íran styður hryðjuverkahópa á Gaza og Líbanon

Arnþrúður vék einnig að fréttum af ofsóknum gegn kristnum mönnum í Líbanon og það væri meðal annars ástæða þess að Ísraelsmenn létu Líbanon ekki í friði og ræddi um áhrif þeirra átaka sem enn einkenna hluta Miðausturlanda. Guðmundur sagði að ekki yrði litið fram hjá hlutverki Írans í málefnum svæðisins og nefndi stuðning við ýmsa hryðjuverkahópa sem starfa bæði í Líbanon, á Gaza og víðar.

Að mati Guðmundar væri markmið Bandaríkjastjórnar ekki aðeins að leysa kjarnorkudeiluna heldur einnig að draga úr áhrifum þeirra afla sem hefðu stuðlað að langvarandi óstöðugleika á svæðinu með því að nota Ísraelsmenn til árása.

Bjartari framtíð fyrir Miðausturlönd

Í þættinum kom fram sú skoðun að þróunin gæti orðið upphaf að nýjum kafla í samskiptum ríkja Miðausturlanda. Með samkomulaginu gæti það styrkt efnahagslega uppbyggingu og aukið samstarf ríkja á svæðinu. Ekki sé búið að birta samninginn í heild en það verði gert næsta föstudag 19. júní.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila