Heimsmálin: Sigur demókrata getur styrkt stöðu Trumps gagnvart eigin flokki

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Franklín Jónsson, í þættinum Heimsmálin, á Útvarpi Sögu, um úrslit þingkosninganna í Bandaríkjunum og áhrif þeirra á síðustu 2 ár forsetatíðar Donalds Trump. Kom fram að þrátt fyrir stórsigur demókrata geti niðurstaðan reynst Trump hagstæð að ákveðnu leyti. Forsetinn hafi átt í stöðugum átökum við áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins en geti nú einbeitt sér að samningum við demókrata. Arnþrúður vakti sérstaka athygli á því hversu yfirvegaður Trump hefði verið í fyrstu viðbrögðum sínum við kosningaúrslitunum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Trump geti átt auðveldara með að semja við Demókrata

Guðmundur sagði úrslit þingkosninganna geta breytt stöðu Trumps með öðrum hætti en ætla mætti við fyrstu sýn. Þótt demókratar hefðu náð miklum árangri þýddi það ekki endilega að forsetinn yrði áhrifalaus. Þvert á móti gæti hann nú átt auðveldara með að semja við pólitíska andstæðinga sína en þá samherja innan Repúblikanaflokksins sem sumir hverjir hefðu ítrekað staðið gegn stefnumálum hans.

Arnþrúður velti fyrir sér hvort Trump væri jafnvel feginn að losna við áhrifamenn úr eigin flokki sem hefðu gert honum erfitt fyrir. Hún nefndi að flokkakerfið gæti skapað mikla innri spennu, þar sem stjórnmálamenn ættu stundum erfiðara með að vinna með eigin samherjum en formlegum andstæðingum.

Guðmundur tók undir það og sagði Trump þekkja marga áhrifamenn innan Demókrataflokksins frá fyrri tíð. Forsetinn hefði sjálfur áður verið demókrati og kynni vel til samningaviðræðna. Hann taldi að Trump gæti nýtt sér þessa stöðu til að ná samkomulagi um einstök mál í stað þess að glíma stöðugt við andstöðu innan eigin flokks.

Neitunarvald forsetans er mikilvægt

Arnþrúður fór yfir þær breytingar sem ný valdahlutföll á Bandaríkjaþingi gætu haft í för með sér. Demókratar gætu stöðvað lagafrumvörp forsetans, haft áhrif á tilnefningar og aukið eftirlit og rannsóknir með ríkisstjórninni. Trump sæti hins vegar áfram í forsetaembætti og héldi þeim valdheimildum sem stjórnarskráin tryggði honum, hann færi með neitunarvaldið áfram.

Guðmundur lagði sérstaka áherslu á neitunarvald forsetans. Hann sagði Trump hafa tekið úrslitunum með óvenjulegri ró og jafnvel gert að gamni sínu að framvegis mætti kalla hann „herra neitunarvald“.

Forsetinn gæti hafnað lagafrumvörpum sem þingið samþykkti og þvingað þannig fram frekari samningaviðræður að því gefnu að þingið hefði ekki nægilegan meirihluta til að hnekkja neitunarvaldinu. Guðmundur taldi jafnframt að Trump myndi áfram nýta forsetatilskipanir innan þeirra marka sem honum væru heimil.

Hann benti sérstaklega á skattamál og innflytjendamál sem möguleg samningsefni. Trump hefði þegar komið mikilvægum skattabreytingum í framkvæmd og gæti nú þurft að semja við demókrata um frekari breytingar.

Innbyrðis átök repúblikana hafi torveldað forsetanum störfin

Guðmundur gagnrýndi forystu Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni og nefndi sérstaklega John Thune. Hann taldi að forystumenn flokksins hefðu staðið gegn ýmsum tillögum Trumps, meðal annars tilnefningum hans í dómaraembætti.

Hann sagði þessa andstöðu stundum hafa verið forsetanum erfiðari en samskiptin við demókrata. Trump hefði því þurft að eyða verulegri orku í að fá eigin flokksmenn til að styðja þau mál sem hann vildi koma fram.

Flokkakerfið úrelt

Arnþrúður spurði hvort úrslitin sýndu að flokkakerfið væri að einhverju leyti orðið úrelt. Hún nefndi hvernig átök, persónulegur ágreiningur og valdabarátta innan stjórnmálaflokka gætu grafið undan samstarfi og vísaði einnig til sambærilegra átaka í íslenskum stjórnmálum.

Guðmundur taldi Trump hafa breytt Repúblikanaflokknum til frambúðar. Stuðningsmenn forsetans innan MAGA-hreyfingarinnar stæðu þétt að baki honum en þeir repúblikanar sem fjarlægst hefðu stefnu hans ættu sífellt erfiðara með að halda áhrifum sínum.

Fyrstu viðbrögð Trumps komu á óvart

Arnþrúður sagði sérstaklega athyglisvert að Trump virtist hafa tekið kosningaúrslitunum með jafnaðargeði og strax lýst yfir vilja til samstarfs við demókrata. Hún taldi það geta skapað ný tækifæri til samvinnu milli forsetans og þingsins.

Guðmundur sagði Trump hafa verið í góðu skapi þegar hann ræddi við bandaríska fjölmiðla eftir kosningarnar í nótt og morgun. Hann hefði ekki sýnt þau viðbrögð, sem margir hefðu vænst, eftir ósigur flokks hans heldur lagt áherslu á að hann kynni að semja og væri tilbúinn að ræða við pólitíska andstæðinga sína.

Hann taldi jafnframt að forsetinn hefði með umfangsmikilli þátttöku sinni í kosningabaráttunni komið í veg fyrir enn meiri ósigur repúblikana. Trump hefði sótt fjölda kosningafunda og lagt sig fram um að styðja frambjóðendur flokksins þótt hann væri ekki sjálfur í kjöri.

Niðurstaðan getur komið í veg fyrir uppreisn í Bandaríkjunum eins og sést í Evrópu núna.

Arnþrúður tók undir að úrslitin gætu skapað nýja stöðu í bandarískum stjórnmálum. Hún taldi jákvætt ef aukin samvinna kæmist á milli stjórnmálaflokkanna og benti á að lýðræðið nyti góðs af því þegar ólík stjórnmálaöfl þyrftu að ræða saman og finna sameiginlegar lausnir.

Guðmundur taldi að Trump myndi áfram hafa veruleg áhrif á stjórnmál Bandaríkjanna og næstu 2 ár gætu einkennst af samningum fremur en þeim stöðugu innanflokksátökum sem hann hefði áður þurft að glíma við. Með þessari niðurstöðu mætti ætla að Bandaríkin yrðu ekki fyrir óeirðum og skemmdarverkaárásum eins og víða er að gerast í löndum Evrópusambandsins. Hann teldi að Trump, meðal annars, væri fenginn að sjá þessa niðurstöðu og koma í veg fyrir innanlandsátök.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila