
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum um hlutafjárútboð SpaceX, vaxandi verðmæti félagsins og hlutverk Starlink-gervihnattakerfisins í starfseminni. Kom fram að eftirspurn eftir hlutum í félaginu hefði verið mun meiri en framboðið og stærsta verðmæti SpaceX lægi ekki í geimskotum heldur í alþjóðlegu fjarskiptakerfi Starlink. Eftir þessa velgengni væri Elon Musk orðinn eini trilljónamæringur heims. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Eftirspurn eftir hlutum fór langt fram úr framboði
Guðmundur sagði að nýlegt hlutafjárútboð tengt SpaceX hefði vakið mikla athygli á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hann nefndi að stærstu fjárfestingarbankar heims hefðu komið að útboðinu og eftirspurn fjárfesta hefði verið langt umfram það magn hluta sem stóð til boða. Verð hefði hlutanna hefði hækkað hratt eftir að þeir komu á markað. Guðmundur taldi það endurspegla mikla trú fjárfesta á framtíð félagsins og þá tækniþróun sem fyrirtækið hefur staðið fyrir á undanförnum árum.
Almenningi gefinn kostur á þátttöku í útboðinu
Í umræðunni spurði Arnþrúður út í fyrirkomulag útboðsins og svaraði Guðmundur því til að lögð hefði verið sérstök áhersla á að almenningur gæti einnig tekið þátt í fjárfestingunni. Að hans mati vakti það athygli að ekki hefði allt útboðið verið ætlað stærstu fjárfestingarsjóðum heims heldur hefðu smærri fjárfestar einnig fengið tækifæri til þátttöku. Það hafi aukið áhuga á útboðinu enn frekar.
Starlink í forgrunni vaxtar SpaceX
Guðmundur sagði að margir litu enn á SpaceX fyrst og fremst sem fyrirtæki sem sendi eldflaugar út í geim en að það væri aðeins hluti af starfseminni. Starlink væri verðmætasta eign félagsins. Kerfið samanstendur af þúsundum gervihnatta sem veita nettengingu víða um heim og hafa gert mögulegt að tengja svæði sem áður höfðu takmarkaðan aðgang að fjarskiptum. Þjónusta Space X næði bæði til afskekktra byggða, skóla og svæða þar sem hefðbundnir fjarskiptainnviðir væru ófullnægjandi.
Þúsundir gervihnatta mynda alþjóðlegt fjarskiptanet
Að mati Guðmundar vanmeti margir umfang Starlink og áhrif kerfisins á fjarskipti um allan heim. Kerfið væri þegar orðið hluti af fjarskiptainnviðum á fjölmörgum svæðum og hefði skapað nýja möguleika fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem áður höfðu takmarkaðan aðgang að hraðvirkum netsamböndum. Þegar metin væru raunveruleg verðmæti SpaceX yrði að horfa til þeirra innviða sem fyrirtækið hefði þegar komið á fót og þeirrar stöðu sem Starlink hefði náð á alþjóðlegum markaði.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
