Heimsmálin: Stór hluti mótmælenda í Frakklandi eru innflytjendur

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu, í Heimsmálunum um mótmæli og óeirðir í Frakklandi. Haukur sagði stóran hluta þeirra sem tækju þátt í átökunum vera innflytjendur, einkum unga menn frá Norður-Afríku og öðrum hlutum Afríku, þótt umræðan í fjölmiðlum snerist að hans mati mest um stúdenta og vinstriöfgamenn. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Margir frá Norður-Afríku og sunnan Sahara

Haukur sagði mikið rætt um stúdenta og vinstriöfgamenn þegar fjallað væri um óeirðirnar í Frakklandi en mun minna um þátt innflytjenda. Hann sagði marga þeirra sem sæjust í mótmælunum vera innflytjendur, sérstaklega frá Norður-Afríku og einnig löndum sunnan Sahara.

Haukur tengdi þessa stöðu við langa sögu Frakka sem nýlenduveldis. Frakkland hefði haft mikil tengsl við ríki í Afríku og fólksflutningar þaðan til Frakklands hefðu orðið umfangsmiklir.

Hann sagði marga ungu mannanna vera múslima og á herskyldualdri. Að hans mati væri ekki hægt að skilja umfang og eðli mótmælanna án þess að horfa á þennan þátt.

Palestínski fáninn áberandi

Arnþrúður vakti athygli á því að palestínski fáninn væri einnig mjög áberandi meðal mótmælenda.

Hún sagði stundum ranglega fullyrt að um Marokkófána væri að ræða en í mörgum tilfellum væri greinilega um palestínska fánann að ræða. Að hennar mati benti það til þess að Palestínumenn og fylgjendur kæmu einnig að mótmælunum.
Arnþrúður sagði jafnframt að sumir teldu að um væri að ræða skipulagða innrás íslamista sem vildu ná auknum áhrifum í Evrópu.

Ungir menn frá Norður- Afríku sem fótgönguliðar

Haukur sagði stöðuna flókna en lagði aftur áherslu á þátt ungra manna frá Norður-Afríku og öðrum hlutum álfunnar. Hann lýsti hluta þessara hópa sem eins konar fótgönguliði sem væri notað til að kveikja í bílum, húsum og öðrum byggingum. Með þeim væru einnig stúdentar sem væru óánægðir með aðstæður og húsnæðisskort í Frakklandi en mótmælin hafi upphaflega hafist með þeim en stigmagnast í óeirðir með tilkomu innflytjenda.

Ólíkir hópar sameinast í mótmælunum

Haukur sagði mótmælin ekki vera ein samstæð hreyfing. Þar kæmu saman ólíkir hópar með mismunandi bakgrunn og pólitísk sjónarmið. Meðal þeirra væru innflytjendur, múslimar, námsmenn og vinstrisinnaðir öfgahópar. Hann sagði einnig sjást sovéska fána, myndir af Che Guevara og Fidel Castro og ýmis pólitísk slagorð.

Haukur rifjaði upp mótmælin í Frakklandi árið 1968 og sagði mótmælamenningu eiga sér djúpar rætur í frönsku samfélagi.

Við þau mótmæli hefðu orðið mikil pólitísk þáttaskil. Þá hefði Frakkland haft sterkan kommúnistaflokk og öfluga verkalýðshreyfingu auk þess sem arfleifð frönsku andspyrnuhreyfingarinnar frá síðari heimsstyrjöldinni hefði enn verið sterk.
Nú væri samfélagsgerðin hins vegar önnur og innflytjendur orðnir mun stærri hluti af frönsku samfélagi en áður.

Fólksflutningar breytt samfélagsgerð Evrópu

Haukur sagði mikla fólksflutninga til Vestur-Evrópu síðustu áratugi hafa breytt samfélagsgerð álfunnar verulega. Fólk hefði flust í miklum mæli frá Norður-Afríku, öðrum Afríkuríkjum, Sýrlandi og fleiri svæðum til Evrópu. Þessir miklu fólksflutningar væru meðal annars að stórum hluta að undirlagi auðmanna eins og George Soros.

Haukur sagði einnig að alþjóðleg öfl hefðu nýtt unga innflytjendur og námsmenn til að knýja fram pólitískar breytingar. Hann vísaði til svokallaðs Gladio-verkefnis og tengsla ýmissa pólitískra hópa við stórveldi.

Óeirðirnar gætu breiðst út

Arnþrúður spurði hvort þróunin í Frakklandi gæti færst yfir til fleiri Evrópuríkja og benti á að svipuð átök hefðu þegar sést í Belgíu. Haukur taldi að hópar sem tækju þátt í uppreisninni gætu reynt að endurtaka slíkt í öðrum löndum.

Hann sagði stóra hópa ungra innflytjenda verða áfram í Evrópu og hafa veruleg áhrif á samfélögin til framtíðar.

Að hans mati væri ekki lengur raunhæft að snúa þeirri þróun við nema með mjög hörðum aðgerðum. Hann tók þó sérstaklega fram að hann vildi sjálfur ekki sjá slíkar aðgerðir.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila