
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu um leiðtogafundinn í Kína, í Heimsmálunum á Útvarpi Sögu um orkumál í kjölfar leiðtogafundar Donalds Trump, Vladimírs Pútíns og Xi Jinping í Kína. Guðmundur sagði aukna framleiðslu og framboð olíu og gass vera eitt af meginatriðum yfirlýsingar leiðtoganna. Hann taldi samstarfið geta breytt alþjóðlegum orkumarkaði, dregið úr áhrifum fjármálamarkaða í London og stuðlað að lægra orkuverði. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Aukin olíuframleiðsla og tryggara orkuframboð
Guðmundur sagði leiðtogana hafa lýst yfir áformum um að auka framleiðslu og framboð á olíuvörum, meðal annars bensíni, dísilolíu og gasi. Markmiðið væri að tryggja stöðugt orkuframboð til iðnaðar, samgangna og heimila, bæði innan ríkjanna 3ja og á alþjóðlegum mörkuðum. Hann taldi þetta marka stefnubreytingu frá loftslagsáherslum Sameinuðu þjóðanna. Að hans mati væri óraunhæft að hverfa hratt frá jarðefnaeldsneyti þar sem iðnaður og samgöngur byggðust enn að verulegu leyti á þessum orkugjöfum.
Áhrif fjármálamarkaða í London undir gagnrýni
Guðmundur gagnrýndi áhrif fjármálamarkaða í London á olíu- og gasverð og hélt því fram að verðmyndunin endurspeglaði ekki alltaf raunverulegt framboð.
Hann nefndi miklar verðbreytingar í kringum bandarísku kosningarnar 3. nóvember og sagði olíuverð hafa lækkað verulega skömmu eftir þær. Þau töldu að stórveldin stefndu að því að draga úr áhrifum London á orkuverð með auknu samstarfi um framleiðslu og viðskipti. Möguleiki væri á að ríkin semdu sín á milli um verð í stað þess að byggja á verðskráningu Brent-olíu í London.
Gasflutningar til Evrópu og Nord Stream 2
Arnþrúður ræddi hindranir á gasflutningum um Úkraínu og kvartarnir Slóvakíu og Ungverjalands vegna þeirra. Truflanir á orkuflutningum hefðu áhrif á aðgang ríkjanna að gasi til húshitunar og iðnaðarframleiðslu.
Hún greindi einnig frá því að upp sé komin umræða í Þýskalandi um að koma annarri leiðslu Nord Stream 2 aftur í notkun til að flytja rússneskt gas til landsins.
Guðmundur sagði önnur leiðslan væri heil og Evrópuríki þyrftu að endurskoða samskipti sín við Rússland. Hann taldi takmarkanir á gasflutningum hafa aukið orkukostnað og veikt samkeppnisstöðu evrópsks iðnaðar.
Lægra orkuverð gæti styrkt iðnaðinn
Guðmundur nefndi gasleiðslur frá Síberíu til Kína og olíuflutninga um Hormússund sem mikilvæga þætti í auknu orkusamstarfi stórveldanna. Hann taldi samstarfið geta tryggt stöðugra framboð og stuðlað að lægra olíu- og gasverði.
Arnþrúður benti á að afleiðingar orkuskorts fyrir evrópskan iðnað og heimili væru orðnar mjög alvarlegar. Guðmundur nefndi Mercedes-Benz sem dæmi um fyrirtæki sem hann sagði beina framtíðarfjárfestingum annað vegna erfiðra rekstrarskilyrða í Evrópu en fyrirækið hefur einmitt fundið vel fyrir þeim orkuskorti sem hrjáð hefur Evrópu.
Hann taldi að þau Evrópuríki sem tryggðu sér aðgang að hagstæðu gasi myndu standa betur að vígi í alþjóðlegri samkeppni og gætu viðhaldið iðnaðarframleiðslu og atvinnu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
