Heimsmálin: Stórveldin gætu samið um ný áhrifasvæði í heiminum

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu, í Heimsmálunum á Útvarpi Sögu í dag, um fyrirhugaðan leiðtogafund Donalds Trump, Vladimírs Pútíns og Xi Jinping í Kína og mögulegar breytingar á valdahlutföllum í heiminum. Kom fram að leiðtogarnir 3 muni ræða skiptingu áhrifasvæða stórveldanna og framtíð Úkraínu, jafnvel þótt þau mál verði ekki á opinberri dagskrá fundarins. Þá verði rætt um kjarnorkuafvopnun og efnahagssamstarf. Haukur sagði Evrópu standa frammi fyrir því að missa áhrif á ákvarðanir sem vörðuðu framtíð álfunnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Ber leiðtogafundinn saman við Jaltafundinn

Haukur sagði fund leiðtoga Bandaríkjanna, Rússlands og Kína geta markað tímamót í alþjóðastjórnmálum. Hann rifjaði upp Jaltafundinn árið 1945, þegar Jósef Stalín, Winston Churchill og Franklin D. Roosevelt ræddu framtíð Evrópu undir lok síðari heimsstyrjaldarinnar.

Hann taldi sambærilega þróun geta átt sér stað nú þegar 3 stórveldi ræddu framtíð alþjóðasamskipta og skiptingu áhrifasvæða. Rússland, Kína og Bandaríkin væru helstu valdamiðstöðvarnar og ákvarðanir þeirra gætu haft víðtækar afleiðingar fyrir önnur ríki.

Að hans mati væri Evrópa að veikjast sem sjálfstæður þátttakandi í alþjóðastjórnmálum og gæti staðið utan mikilvægustu ákvarðananna.

Evrópa gæti misst áhrif á framtíð Úkraínu

Haukur taldi leiðtogana munu ræða stríðið í Úkraínu á bak við tjöldin þótt það yrði ekki tekið sérstaklega fyrir á opinberum fundum.

Hann sagði Rússland og Kína hafa sameiginlega hagsmuni af því að ná samkomulagi við Bandaríkin um framtíð öryggismála og áhrifasvæða. Þar gæti staða Úkraínu orðið eitt helsta viðfangsefnið.

Haukur gagnrýndi stefnu evrópskra stjórnvalda gagnvart Rússlandi og taldi útþenslu NATO til austurs, hafa verið hluta af viðleitni til að veikja rússneska ríkið. Sú stefna hefði að hans mati ekki skilað tilætluðum árangri.

Hann sagði hugsanlegt að framtíð Úkraínu yrði ákveðin að verulegu leyti í samskiptum Washington, Moskvu og Peking fremur en á vettvangi Evrópusambandsins.

Kjarnorkuafvopnun og efnahagssamstarf á dagskrá

Pétur benti á að Bandaríkjamenn vildu ræða fækkun kjarnavopna á fundinum. Hann spurði jafnframt hvernig hægt væri að ná samkomulagi við Kína sem hefði aðra hagsmuni en Bandaríkin og Rússland varðandi stærð kjarnorkuvopnabúrs síns.

Haukur taldi ólíklegt að alvarleg hernaðarátök brytust út milli Rússlands og Kína undir núverandi leiðtogum. Hann sagði leiðtogana þurfa að finna sameiginlegan grundvöll í öryggis- og efnahagsmálum.

Pétur ræddi einnig hvaða atriði gætu orðið hluti af sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoganna og benti á að þar yrði tæpast fjallað berum orðum um skiptingu heimsins í áhrifasvæði.

Haukur taldi líklegt að yfirlýsingin myndi fjalla um efnahagssamstarf, orkumál, umhverfismál, afvopnun og frið.

Telur samkomulag stórveldanna geta breytt heimsmyndinni

Haukur sagði mögulegt samkomulag Bandaríkjanna, Rússlands og Kína geta markað upphaf nýrrar skipanar í alþjóðasamskiptum.

Hann taldi leiðtogana geta komist að óformlegri niðurstöðu um hvar áhrifasvæði hvers stórveldis lægju og hvernig draga mætti úr átökum þeirra á milli.

Að hans mati væri staða Úkraínu nátengd þessari þróun. Hann gerði ráð fyrir að Pútín og Xi myndu ræða framtíð landsins við Trump og niðurstaðan gæti haft veruleg áhrif á valdahlutföll í Evrópu.

Haukur sagði Evrópusambandið standa frammi fyrir erfiðri stöðu ef mikilvægustu ákvarðanir um öryggismál álfunnar yrðu teknar án beinnar þátttöku þess.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila